Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Hann telur hér til varnarsamstarf sem við settum á oddinn að efla og reyndar sumpart ganga til liðs við þannig að það er gott að heyra þá upptalningu. En Evrópusambandið er óumdeilanlega ekki varnarbandalag, löndin þar inni geta ekki varið sig sjálf og hvað þá aðra og mér er til efs að fulltrúar Evrópusambandsins haldi þessu fram. Ég held að þetta sé bara einhver séríslensk innanlandsumræða, að það sé verið að reyna að lokka ríkið til liðs við eitthvert varnarbandalag. Varðandi svarið um Bandaríkin er ég því fullkomlega ósammála, eins og ég hef komið á framfæri, að rækt hafi verið lögð við Bandaríkin á þessu kjörtímabili. Ég vísa sérstaklega til þessa kjörtímabils af því að ég heyrði að hv. þingmaður var farinn að tala um fundi Davíðs Oddssonar. Ég er bara að spyrja um árið 2025 og ég þykist vita að öll Norðurlöndin hafi sent út ekki einn, ekki tvo heldur sum þrjá ráðherra ítrekað til fundar til Bandaríkjanna til að hitta bandaríska ráðamenn. Það hefur okkar ríkisstjórn ekki gert. Er hv. þingmaður sáttur við þá framgöngu og þá forgangsröðun? Ég óska eftir svari við því.
Mig langaði síðan aðeins hér í síðara andsvari að spyrja út í þær blokkir sem hv. þingmaður fór hér yfir að væru að myndast, réttilega, og hvort það sé hans einlæga afstaða að svar okkar við því sé það að ganga til liðs við eina af þessum blokkum, ESB, sem er tollabandalag sem beitir önnur ríki bara mjög svipuðum aðgerðum og Bandaríkin eru að gera t.d. varðandi viðskipti, og hafa auðvitað ekki verið í forystu og talað fyrir viðskiptafrelsi eins og Bandaríkin hafa reyndar gert og eru auðvitað að taka U-beygju, því miður, í þeim efnum. Það væri gott að heyra afstöðuna til þess og hvort þá hv. þingmaður beri ekki kennsl á sérstöðu Íslands samanborið við ESB-ríkin í þessum efnum varðandi það að ganga til liðs við þessa blokk. Og það er auðvitað ekki gott að heyra, þótt það sé gott að menn séu hér hreinskilnir í pontu, hversu áfjáðir sumir stjórnarliðar eru í trú sinni á Evrópusambandið, (Forseti hringir.) svo áfjáðir að þeir geta ekki einu sinni kallað tolla frá Evrópusambandinu tolla. Það eru alltaf verndarhagsmunir, það eru tollar frá Bandaríkjunum, verndaraðgerðir Evrópusambandsins.