157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[16:42]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna sem var svona í meira jafnvægi heldur en fyrri innkoma hæstv. ráðherra. En það veldur mér vonbrigðum að hæstv. ráðherra hafi ákveðið að nota þessa umræðu til að kljúfa þingheim og dylgja um að hér væru til hv. þingmenn sem styddu ekki Grænland.

Það er ekkert nýtt að við skrifuðum undir samkomulag við ríki um varnarsamstarf, getum við sagt. Sjálfur skrifaði ég undir slíkt við Noreg, Svíþjóð og Bretland, ef ég man rétt. Við gengum í JEF, sem er stærra mál. En það er rangt og ekki heiðarlegt að láta að því liggja að með því séum við einhvern veginn að stíga þau skref að fjölga eggjunum í körfunni og það geti með einhverjum hætti komið í stað þeirra varna sem við byggjum á. Varðandi fjölþáttaógnir gengum við í það mál 2021 undir minni forystu. Hæstv. ráðherra segir að við séum að gera varnar- og öryggismálasamkomulag við ESB tortryggilegt. Hæstv. ráðherra sagði, eftir að gengið var eftir því áðan: Ég ætla ekki að skrifa undir þetta vegna þess að þeir brutu á okkur EES-samninginn. Það var verið að gefa skilaboð. Það var hæstv. ráðherra sem gerði það. Að mér vitandi hefur ekkert breyst í því, ekki síðast þegar ég vissi. Ég er þeirrar skoðunar og er sannfærður um það að ef þau skilaboð hefðu verið gefin fyrr þá hefðu þeir ekki farið í þessa vegferð því þeir vita það að ríkisstjórnin vill ganga í Evrópusambandið.

Hæstv. ráðherra hefur talað um undanþágur, varanlegar undanþágur fyrir okkur ef við göngum inn, og að við séum í góðri samningsstöðu. Ég vil að hæstv. ráðherra upplýsi okkur um hvað við ætlum að semja um ef við sækjum um aðild að Evrópusambandinu. Til hvaða undanþága er hæstv. ráðherra hér að líta til?