Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég spurði tveggja spurninga. Ég benti á að það var hæstv. ráðherra sem sagði: Ég ætla ekki að skrifa undir þetta vegna þess að hér var brotið á okkur, þeir brutu EES-samninginn. Það hefur ekkert breyst síðan það var, ekki neitt. Af hverju sagði hæstv. ráðherra þetta ef hún var ekki að meina þetta? Hugmyndin á bak við þetta form hérna í þinginu er að maður spyrji spurninga, í þessu tilfelli ráðherra, hann svarar og maður getur komið með andsvar aftur. Hæstv. ráðherra svaraði engu, ekki neinu, og fær síðan eina mínútu til að svara einhverju en ég get ekki komið til baka, alla vega ekki í þessum umræðum. En ég er á mælendaskrá, virðulegi forseti.