Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ræðan var bara mild og ljúf og kveikti ekki neitt í mér, ég vildi bara spyrja hv. þingmann, þetta snýst ekki um það að við séum í einhverjum árásum heldur erum við bara að reyna að taka samræðuna. Hv. þingmann misminnir ekki neitt. Hér í salnum er hv. þm. Pawel Bartoszek sem var nú í Sjálfstæðisflokknum og eftir sem ég best veit þá hefur hann alltaf verið með sömu skoðanirnar þegar kemur að Evrópumálum. Hæstv. utanríkisráðherra, sem er ekki lengur í salnum, var sömuleiðis varaformaður flokksins og var sömuleiðis þar. Sá sem hér stendur og talar hefur algerlega verið laus við ESB-veiruna. En það er allt í lagi. Ég hefði alveg gjarnan viljað hafa fleira fólk í Sjálfstæðisflokknum og saknaði þessa fólks þegar það fór þó að ég væri fullkomlega ósammála þeim í þessum málum. En við erum bara komin á annan stað núna. Núna snýst þetta um að verja Ísland gegn þeim öflum sem ætla að koma okkur inn í Evrópusambandið. Það mun ég gera eins vel og ég mögulega get og mun ekki liggja á liði mínu þar því það yrðu óafturkræf mistök og hefði mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér.
Hins vegar, og þess vegna er ég svona forvitinn, er alltaf talað um að þetta sé svo samstæð ríkisstjórn. Ég nefndi að hér er búið að kasta öllu grímum. Hér ætla menn blygðunarlaust að koma Íslandi inn í Evrópusambandið. Það er gert í umboði Flokks fólksins. Flokkur fólksins ber ábyrgð á því. Flokkur fólksins ber ábyrgð á því að þessi ríkisstjórn er að gera allt hvað hún getur til að koma þjóðinni í Evrópusambandið. Sumt sjáum við, annað sjáum við ekki. En orðræðan er ekki neitt lengur undir rós og nú eru menn allt í einu komnir með rök sem aldrei voru notuð áður. Þeir hafa alltaf notað rök og alltaf viljað fara inn en núna er bara komin upp einhver staða og það á að nota það til þess að hræða (Forseti hringir.) þjóðina inn í Evrópusambandið. Ég spyr: Hvernig líður hv. þingmanni sem horfði á kjósendur sína (Forseti hringir.) og sagði skýrt að við viljum ekki fara í Evrópusambandið en ber ábyrgð á ríkisstjórn sem gerir allt hvað hún getur til að koma Íslandi í Evrópusambandið?