157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[17:23]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans annað andsvar og finnst þetta óskaplega skemmtileg umræða, verð ég að segja. Ég vil fyrst segja að ég fagna því að umræðan er ekki lengur undir rós. Mér leiðist svoleiðis umræður, að vera alltaf eitthvað að hoppa og skoppa í kringum það eins og köttur í kringum heitan graut. Við eigum bara að tala tæpitungulaust. Mér finnst líka gott að heyra að þeir sem hafa þessar skoðanir, sem hv. þingmaður lýsir, segja að hreinlega það allra versta sem mögulega gæti gerst fyrir þjóðina sé að hún færi í ESB, það sé nánast bara verra en — en hvað? Reynum að ímynda okkur verstu mögulegu sviðsmynd, að Bandaríkjaforseti myndi taka Grænland með hervaldi. Við erum hérna næsti bær og ekki síður mikilvæg landfræðilega fyrir forsetann samkvæmt hans rökum og við sæjum svo að það biði okkar eitthvað sambærilegt. Þá langar mig að spyrja, en ég er ekki viss um að ég geti fengið svör við því núna: (GÞÞ: Ég kem í ræðu. ) Óttast þingmaðurinn að það verði nánast verri örlög þjóðar að fara í Evrópusambandið eða að bíða þess með NATO einhvers staðar, sem við vitum ekki hvar yrði statt í öllu því, að vera næsta „skotmark“, Bandaríkjaforseta? Segjum sem svo að Grænland sé fyrst og Ísland svo. Ég meina, hann nefndi jú Ísland tvisvar ef ekki þrisvar í sinni ræðu. Erum við nánast að segja að það sé bara betra að bíða og sjá, jafnvel þó að versta mögulega sviðsmynd myndi gerast, frekar en að Ísland myndi einhvern veginn hugsa sér að leita sér skjóls meðal Evrópuríkjanna? (GÞÞ: Það er ekkert skjól. )Nei, en ég segi svona. Þá þarf kannski meiri rökstuðning í því. [Kliður í þingsal.] Hvað er það hræðilegasta sem gæti mögulega gerst fyrir þjóðina?

(Forseti (EÁs): Engin samtöl í sal.)

Hvað gæti mögulega verið það versta sem myndi gerast fyrir íslensku þjóðina ef hún myndi nú álpast inn í Evrópusambandið? Segjum sem svo að atkvæðagreiðslan sem við erum að fara að bjóða upp á (Forseti hringir.) á næsta ári komi jákvæð út. (Forseti hringir.) Mér þætti gaman að vita hvað þingmaðurinn segir.