157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[17:30]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið en hv. þingmaður svaraði ekki spurningu minni varðandi það hvort hún kannist ekki við umkvartanir Europol um þungt regluverk Evrópusambandsins sem gerir þeim erfiðara fyrir að berjast gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Hv. þingmaður lýsir því yfir að hún sé mjög sátt og þingflokkur Flokks fólksins. Ég er ekki viss um að kjósendur séu eins sáttir. Varðandi ummæli hv. þingmanns um að hún segi nánast ekki nei við neinu, þá segi ég hér í gamansömum tón að ég er ekki viss um að það sé rosalega góður kostur í fari stjórnmálamanns en slæ þessu upp sem léttu gríni. Ég var ekki að spyrja hv. þingmann um hversu jákvæð hún væri til þessa samkomulags sem var gert við myndun þessarar ríkisstjórnar. Ég er hreinlega að spyrja hv. þingmann að því, af því að forystumenn Flokks fólksins hafa lýst því ítrekað og mjög eindregið yfir að flokkurinn sé alfarið á móti inngöngu í ESB: Hver er afstaða hv. þingmanns til inngöngu í Evrópusambandið? Hver er afstaða hv. þingmanns? Ég held að kjósendur og almenningur eigi rétt á að fá að vita um þessa afstöðu hv. þingmanna Flokks fólksins.