Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar seinna andsvar. Varðandi umkvartanir Europol um þungt regluverk Evrópusambandsins verð ég bara að segja að í þessari ferð okkar allsherjar- og menntamálanefndar til Amsterdam og Haag var reyndar ekki farið neitt mjög mikið í það. Ég bara þori eiginlega ekki að fara með það. Ég efast ekki um að hv. þm. Diljá telji að það sé rétt að það sé mögulega þarna þungt regluverk, alveg klárlega. Ég er ekki sérfræðingur í regluverki Europol eða Evrópusambandsins og kannski ekki margir hér sem eru með það alveg allt á hreinu þannig að ég þori ekki að fara með það. Það var alla vega ekki rætt svo ég muni eftir nema ég hafi eitthvað dottið út þarna í umræðunni.
Að því sögðu held ég að hv. þingmaður hljóti að skilja að það er kannski ekki alveg hægt að ganga að öllum og segja bara ertu með eða á móti. Fyrst og fremst myndi það skipta mig dálitlu máli að sjá hvernig landið liggur hjá þjóðinni. Ef það kæmi kannski 80% já út úr þessari skoðanakönnun þá færi maður dálítið að skoða: Bíddu, ókei, það er bara einhver sveifla í þessa átt. Þarna er greinilega eitthvert traust og þá myndi maður dálítið fylgja með og fara að skoða: Bíddu, hvað er það sem fólk er ánægt með? Síðan snýst þetta ekki alveg um að vera annaðhvort inni eða úti án athugunar: það gerist ekkert á einni nóttu. Við getum líka öll verið með spádóma í sambandi við hvernig allt verður en enginn veit það hér núna. Ef til kæmi veit þingmaðurinn að það er ansi langur vegur þar til einhver færi að segja: Heyrðu, þetta er bara svo fjandi gott, með leyfi forseta, afsakið orðbragðið, að ég er til í að kvitta upp á þetta. Það þarf heldur betur að liggja fyrir nákvæmlega hvað það er sem verið er að skrifa upp á og hversu vel það hentar þessari þjóð og öllu því sem við leggjum áherslu á að halda gangandi. (Forseti hringir.) Þetta er því ekki alveg svona einfalt og ég efast um að þingmaðurinn fái nokkurn (Forseti hringir.) hérna upp í pontu til að afgreiða málið svona skýrt og skorinort. Flokkurinn hefur alveg haft (Forseti hringir.) skýra stefnu (Gripið fram í.) en atkvæðagreiðsla (Forseti hringir.) og að bjóða þjóðinni upp á að greiða atkvæði um þetta held ég að við getum öll kvittað upp á að sé gott mál.
(Forseti (EÁs): Forseti minnir hv. þingmenn á ræðutímann.)