157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[18:05]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Þetta er búin að vera áhugaverð umræða í dag, komið víða við. Stór hluti hennar hefur snúist að einhverju leyti um Evrópusambandið og áhuga ríkisstjórnarflokkanna núna á að verða hluti af því.

Alexander Stubb, forseti Finnlands, hélt áhugaverða ræðu í gær í Davos, þær hafa verið nokkrar áhugaverðar — eða þetta var viðtal sem sá sem hér stendur sá í gær hjá erlendri fréttastofu. Hann fór að tala um svona samhengi hlutanna en hann var fræðimaður áður en hann fór í pólitíkina og hefur skrifað töluvert um alþjóðamál og m.a. um smáríki og stöðu þeirra. Það sem hann var að tala um í gær er þessi órói í alþjóðakerfinu sem við erum að upplifa þessa dagana og var líka að benda á að þetta gerðist á 20, 30, 40 ára fresti og þetta væri kannski ekki ósvipuð staða og í fyrri heimsstyrjöldinni og eftir hana, eftir seinni heimsstyrjöldina og eftir að kalda stríðinu lauk og svo væri svona óróleiki akkúrat núna sem við erum að upplifa. Ég held að það hafi allir gott af að horfa á þetta viðtal að mörgu leyti þarna, hann var líka að tala út frá hagsmunum smáríkis eins og Finnland er samkvæmt skilgreiningum, svona almennt er skilgreiningin að það sé undir 10 milljónum. Það er margt áhugavert hjá Finnum. Ég sá áðan að það eru komin einhver viðtöl við Alexander Stubb frá Davos.

En það er þessi mikla þróun — við þekkjum það, Íslendingar, að eftir seinni heimsstyrjöld og þegar við urðum sjálfstætt ríki þá lifum við ótrúlega áhugaverða tíma, við skulum segja bara frá seinni heimsstyrjöld og frá 1941 þegar Bandaríkjamenn taka við af Bretum og hernema landið í stað Breta í júlí 1941. Við skulum kannski skoða þetta til 1950–1955, þá gerist auðvitað mjög margt sem hefur gríðarleg áhrif á sjálfstæði okkar Íslendinga og hvernig alþjóðakerfið er byggt upp. Sameinuðu þjóðirnar eru stofnaðar 1945 og Íslendingar verða þátttakendur í Sameinuðu þjóðunum 1946 og svo þekkjum við aðdragandann að NATO-aðildinni. Það eru að einhverju leyti viðbrögð við því sem var að gerast í Tékkóslóvakíu, svo er það múrinn og járntjaldið og þetta er allt að skapast á þessum tíma. Það sem gerist síðan eftir NATO-aðildina í apríl 1949 er að gerður er samningur við Bandaríkin, tvíhliða samningur í maí 1951 um varnir og það er svolítið það sem við erum að ræða og fást við í dag, í þessu sögulega samhengi. Síðan kemur Marshall-aðstoðin hingað í kringum 1950 og árin þar í kring, 1948, 1950, en síðan fáum við þessa seinni Marshall-aðstoð sem er áhugaverð, 1956–1960, sem var viðbragð við þeirri vinstri stjórn sem var hér 1956–1959, stjórn Alþýðuflokksins, Alþýðubandalagsins og Framsóknarflokksins. Þá kemur til seinni Marshall-aðstoðin, en vinstri stjórnin vildi vísa hernum úr landi. Síðan þróast þetta áfram og við komum síðan næst að því þegar verða mikil þáttaskil í okkar varnar- og öryggismálum þegar kalda stríðinu lýkur 1991. Á Íslandi er samt her til ársins 2006 þegar að lokum Bandaríkjamenn yfirgefa landið þar sem þeir telja hag sínum betur borgið með því að hafa þann herstyrk sem hafði verið í Keflavík, í Mið-Austurlöndum.

Saga Grænlands í þessu samhengi er náttúrlega mjög tengd þessu líka vegna þess að Danir skrifa undir samninginn um Grænland við Bandaríkjamenn einhverjum átta dögum eftir að þeir höfðu skrifað undir tvíhliða samninginn við Ísland. Þar er líka um langt samband að ræða varðandi öryggis- og varnarmálin. Það sem gerist þarna eftir seinni heimsstyrjöld er að Bandaríkin móta eiginlega heiminn með þessu kerfi sem er byggt upp, hafa mikil áhrif á Sameinuðu þjóðirnar og síðan NATO, líka þessar Bretton Woods-stofnanir, Alþjóðabankann og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þeir byggja upp það kerfi sem hefur byggt upp heiminn núna í 80 ár og mótað hann að einhverju leyti eftir eigin höfði og raunverulega er meginmarkmiðið að byggja upp efnahag heimsins og lýðræði í heiminum. Þetta gengur allt út á það.

Þegar við komum svo að Grænlandi núna og því sem er að gerast þá er bara mikilvægt að hafa í huga að Bandaríkjamenn hafa öll tækifæri á að komast í sjaldgæfa málma á Grænlandi og hafa haft um áratugaskeið og hafa alla möguleika á að setja upp herstöðvar með öllum þeim hætti sem þeir hafa áhuga á. Í dag er bara herstöð í Thule, 150–200 manns, en gríðarlega mikilvæg herstöð. Valur Ingimundarson, prófessor við Háskóla Íslands, hefur skrifað um það að væntanlega var bara ein herstöð mikilvægari heldur en í Keflavík í kalda stríðinu og það var herstöðin í Thule. Það segir svolítið um mikið vægi Grænlands í þessu samhengi. En síðan voru Bandaríkjamenn víða um Grænland og sérstaklega fyrstu áratugina eftir 1951. Þess vegna er landfræðilega staða Grænlands, sem og Íslands, gríðarlega mikilvæg, hefur strategískt mikilvægi í tengslum við bæði öryggis- og varnarmál. Sá sem hér stendur hefur enga trú á öðru en að Bandaríkjamenn muni halda áfram að verja norðanvert Norður- Atlantshaf. Það eru bara grundvallarhagsmunir Bandaríkjanna, fyrstu varnir Bandaríkjanna, að halda uppi öflugum vörnum á þessu svæði, um GIUK-hliðið, fyrst og fremst að verjast kafbátum frá Kólaskaga, hvar helsti herstyrkur Rússa í dag liggur. Hvað varðar Thule og Grænland þá eru þar eldflaugavarnir og slíkt, þessi landfræðilega staða er gríðarlega mikilvæg gagnvart því.

Ég vildi bara rétt koma þessu að, þetta hefur ekkert verið rætt hérna, vildi nýta þessar fáu mínútur til að fara aðeins í gegnum þetta umhverfi sem hefur verið. Eins og Alexander Stubb hefur komið inn á núna í Davos þá eru hreyfingar í gangi og breytingar, en ég hef ekki trú á því endilega að Evrópusambandið sem slíkt sé lausn allra vandamála tengd þessu eins og hefur verið töluvert rætt hér í dag. Stjórnarflokkarnir eru svona mismunandi harðir í þeirri afstöðu reyndar. En við þurfum að fara miklu dýpra en þetta. Evrópusambandið er ekki lausnin í öllum þessum málum. Ég hef komið inn á það í dag og áður í ræðum hér í þinginu á undanförnum árum hvernig Svíar og Finnar litu á málin 2022 eftir að Rússar fóru inn í Úkraínu, að 7. mgr. 42. gr. Lissabon-sáttmálans væri ekki lausn á þeirra málum, og þeir fóru strax og sóttu um aðild þremur mánuðum eftir að innrásin hófst. Síðan eru það fjárveitingarnar sem ég kom inn á áðan, það er mikilvægt að hafa þær í huga til að þroska þessa umræðu. Það eru níu NATO-ríki sem eru ekki í Evrópusambandinu sem greiða um 80% af öllum fjárveitingum til NATO í dag, 80%, en Evrópusambandsríkin um 20%. Bandaríkjamenn 55%, Bretland 10% og önnur NATO-ríki utan Evrópusambandsins eru með 15%. Það er bara þessi stóra mynd sem er rétt að draga upp. (Forseti hringir.) Evrópusambandið er ekki lausn á öllum öryggisvandamálum Íslendinga hér í Norður-Atlantshafi til næstu ára. Það þarf að þroska þetta samtal með miklu betri og öflugri hætti.