157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[18:35]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Frú forseti. Við okkur öllum blasir heimsmynd sem hefur breyst á aðeins nokkrum misserum og spenna hefur aukist í heiminum, jafnvel svo að bandamenn til margra ára eru ósammála um fyrirætlanir og orðræðu hvers annars. Á undanförnum mánuðum hefur staða sem tengist Grænlandi og Danmörku breyst hratt og sú breyting hefur áhrif á öryggismál, viðskipti og alþjóðakerfið sjálft og þróun þess. Forseti Bandaríkjanna hefur ítrekað á síðustu misserum lýst því yfir að Bandaríkin verði að hafa yfirráð yfir Grænlandi og tengt þá kröfu beint þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Þjóðarleiðtogar, fjölmiðlar og allur almenningur hefur verið óviss um hvernig taka eigi málflutningi forseta Bandaríkjanna en í nýlegum viðræðum fulltrúa Bandaríkjanna, Grænlands og Danmerkur í Bandaríkjunum ítrekuðu forsetinn og hans fólk að þeim væri alvara með þessari kröfu, í þeim tilgangi að koma í veg fyrir áhrif Kínverja og Rússa á svæðinu. Fram hefur komið að forseti Bandaríkjanna útiloki jafnvel ekki beitingu hervalds til að ná yfirráðum á Grænlandi. Fyrir fáum dögum tilkynnti forseti svo um tolla á innflutning til Bandaríkjanna sem hann legði á þær þjóðir sem stæðu í vegi fyrir áformum hans varðandi Grænland. Á fundi í Davos í Sviss í gær tilkynnti forsetinn að hann væri hættur við að leggja aukna tolla á þessar tilteknu þjóðir sem m.a. voru Norðurlandaþjóðirnar, utan Íslands. Jafnframt tilkynnti forsetinn að hann hygðist ekki beita hervaldi á Grænlandi. Þessum yfirlýsingum ber að fagna þó að ekki sé á vísan að róa þegar kemur að yfirlýsingum úr þessum ranni.

Grænlendingar og Danir hafa útilokað að áform Bandaríkjaforseta komi til álita. Grænlendingar fara sjálfir með stjórn og ákvörðunarrétt á Grænlandi og tilheyra danska konungsveldinu. Þeir eru fullvalda þjóð. Þeir hafa bent á að framtíð Grænlands og Grænlendinga verði ekki ráðin án þeirra sjálfra. Undir þetta hafa mörg ríki Evrópu tekið, þar með talið Ísland, Noregur og ríki innan Evrópusambandsins, og stjórnvöld í þessum ríkjum hafa brugðist hart við yfirlýsingum og áformum forseta Bandaríkjanna um Grænland og lýst yfir stuðningi við Grænlendinga og Dani. Er því ljóst að Evrópuríkin styðja Grænlendinga og Dani í þessu máli og mótmæla einarðlega fyrirætlunum Bandaríkjaforseta en því skal haldið til haga að Bandaríkjunum stendur til boða að byggja og manna herstöðvar á Grænlandi í því skyni að tryggja öryggi og varnir NATO og þar með Bandaríkjanna á norðurslóðum.

Frú forseti. Það er mikilvægt að muna að meðal íbúa Grænlands er hörð andstaða við hugmyndir um að Grænland verði yfirtekið af Bandaríkjunum. Það er líka áhugavert að velta því fyrir sér hver gæti verið kostnaðurinn. Hvað kostar eitt stykki Grænland? Það er væntanlega ekki til neitt markaðsvirði á löndum eða ferkílómetrum, en það er áhugaverð hugmynd að geta keypt land. Yfirlýsingar ráðamanna eru skýrar þar að lútandi og þá á ég við yfirlýsingar ráðamanna í Grænlandi. Undanfarna daga hafa þúsundir Grænlendinga mótmælt í Nuuk og víðar og lagt áherslu á að framtíð landsins skuli ráðin af þeim sjálfum og innan ramma samnings þeirra við Danmörku. Mótmæli hafa einnig verið í Danmörku.

Málefni Grænlands eins og þau birtast okkur í heimspólitísku ljósi eru ekki einvörðungu ágreiningur milli Grænlands og Danmerkur annars vegar og Bandaríkjanna hins vegar heldur má sjá í þeim stöðu alþjóðakerfisins og hvort það standist þau markmið sem því er ætlað að ná, þ.e. að virðing sé borin fyrir sjálfsákvörðunarrétti þjóða. Það er mikilvægt að Ísland sem ríki sem tilheyrir norðurslóðum, eins og Grænland, bandalagsríki í NATO og vinaþjóð Grænlendinga, fylgist náið með framvindu mála, styðji við friðsamlegar lausnir, standi vörð um stöðugleika á norðurslóðum og síðast en ekki síst standi vörð um að alþjóðalög séu virt og að afl ráði ekki í samskiptum þjóða. Það er mikið atriði fyrir okkur Íslendinga að stöðugleiki á norðurslóðum sé tryggður og að allar ákvarðanir um framtíð Grænlands séu teknar í samræmi við vilja Grænlendinga sjálfra og innan ramma alþjóðalaga. Íslendingar standa með Grænlendingum alltaf og ævinlega og munu ávallt tala fyrir því að Grænlendingar hafi sjálfsákvörðunarrétt um eigin málefni.

Frú forseti. Ísland er herlaus þjóð en við höfum trúverðugleika og virðingu á alþjóðavettvangi og sterka stöðu innan norðurslóðasamstarfs. Við getum átt frumkvæði að lausnum sem byggja á samráði, öryggi og virðingu fyrir sjálfsákvörðunarrétti. Aðgerðir okkar verða að endurspegla tvö lykilmarkmið; frið og stöðugleika á norðurslóðum og virðingu fyrir fullveldi og rétti þjóða til að ráða eigin framtíð. Ísland getur verið rödd skynsemi og ábyrgðar á ögurstundu og talað fyrir því að tryggt sé að á norðurslóðum verði samvinna áfram í hávegum höfð og sneitt hjá átökum.

Ég er hræddur um að það sem sagt hefur verið um afleiðingar þess að Bandaríkin taki við stjórn Grænlands verði þær að þeir sem eru við stjórnvölinn í öðrum stórveldum sjái það sem merki um að þeir geti tekið yfir lönd sem þeir girnast með vísan til öryggis lands eða öryggis þjóðar og þjóðarbrota. Þannig kynnu Rússar að réttlæta innrásina í Úkraínu sem nauðsynlega vegna öryggis Rússlands og Rússa. Kínverjar gætu séð það sem merki um að alþjóðasamfélagið myndi ekki fetta fingur út í yfirtöku þeirra á Taívan því að þeir þyrftu að innlima Taívan í Kína vegna öryggis landsins. Allt er þetta til merkis um að alþjóðalög séu síður virt og þar með er einni stoð friðar kippt undan fótum þeirra þjóða sem treysta á að alþjóðalög séu virt sem hluta af vörnum sínum.

Þau atriði sem ég hef farið yfir hér að framan eru vissulega þau atriði í heimsmálunum sem hæst ber nú um stundir og standa okkur nærri. Afstaða Íslendinga er og verður að standa með því að fullveldi þjóða sé virt, svo og sjálfsákvörðunarréttur og sama gildir um alþjóðalög og alþjóðasamninga.

Á sama tíma hefur ekki verið friðvænlegt í löndum fyrir botni Miðjarðarhafs. Í kjölfar mannskæðrar árásar Hamas á Ísrael í október 2023 hafa Ísraelsmenn stundað hernað á Gaza-svæðinu með þeim afleiðingum að þúsundir óbreyttra borgara hafa týnt lífi sínu, þar með talin 15.000 börn. Aðgerðir Ísraels hafa á sér öll einkenni þjóðarmorðs á Palestínufólki. En nýverið hefur tekist að mestu að halda frið á Gaza-svæðinu og vonandi mun sá friður haldast svo að þeir Palestínumenn sem enn eru á Gaza-svæðinu fái mannúðarhjálp og hægt sé að hefja hreinsun og uppbyggingu á svæðinu. Ríkisstjórn Íslands og hæstv. utanríkisráðherra hafa talað skýrt þess efnis að framganga Ísraels sé langt umfram tilefni, sé ólíðandi og beri með sér öll einkenni þjóðarmorðs.

Mikill óróleiki hefur verið í Íran þar sem almenningur hefur mótmælt vöruskorti og hörku yfirvalda gagnvart mótmælendum og svo virðist sem klerkastjórnin í Íran hafi glatað trausti almennings og ekki er hægt að sjá hvernig þetta ástand þróast áfram. Það er ótryggt ástand og viðsjár víða annars staðar í heiminum og má í dæmaskyni nefna Afganistan og Súdan.

Ég hef aðeins stuttlega vikið að innrásarstríði Rússa í Úkraínu en það hefur haft víðtækar afleiðingar í Evrópu en auðvitað fyrst og fremst fyrir Úkraínu. Mannfall hefur verið mikið og margir Úkraínumenn hafa flúið land, m.a. hingað til lands. Evrópuríki hafa flest staðið með Úkraínu en innrás Rússa í landið sýnir okkur algjöran skort á vilja rússneskra stjórnvalda til að virða fullveldi þjóða og það er áhyggjuefni, eins og fram hefur komið, ef afl ræður stöðu þjóða en ekki lög og samningar. Ég skil vel áhyggjur þeirra þjóða sem næstar eru Rússlandi landfræðilega. Hafi Rússar árangur af innrásinni í Úkraínu aukast líkur á því að fullveldi þeirra verði ekki virt. Ísland hefur verið í hópi þjóða sem einarðlega hafa fordæmt ólögmæta innrás Rússa í Úkraínu. Ísland stendur með fullvalda úkraínskri þjóð og virðir sjálfsákvörðunarrétt hennar.

Frú forseti. Að lokum vil ég ræða stuttlega um stöðu öryggismála hér á landi. Samráðshópur þingmanna skilaði á síðasta ári skýrslu sem ber nafnið Inntak og áherslur stefnu í varnar- og öryggismálum þar sem farið er með vönduðum hætti yfir tiltekna þætti sem varða öryggis- og varnarmál. Í allsherjar- og menntamálanefnd er nú til meðferðar frumvarp hæstv. dómsmálaráðherra um almannavarnir og almannavarnir er sú stofnun, í víðum skilningi þess orðs, sem mikið mæðir á varðandi öryggismál landsins. Almannavarnir hafa sannarlega fleiri verkefni en þau sem snúa að varnar- og öryggismálum, svo sem vegna náttúruhamfara og heimsfaraldurs.

Verandi herlaus þjóð hefur það komið í hlut sérfræðinga hjá varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, varnarmálasviði Landhelgisgæslunnar, embætti ríkislögreglustjóra, netöryggissveit stjórnvalda og eftir atvikum annarra embættismanna að sinna samskiptum við þá starfsmenn erlendra samstarfsþjóða sem starfa að varnarmálum þeirra landa. Ég hef áður í þessum ræðustól lagt á það áherslu að það verði hugað að því að styrkja starfsemi þeirra borgaralegu stofnana sem að öryggis- og varnarmálum koma, einkum lögreglunnar, en ég hygg að á þeirri stofnun muni mikið mæða hvað varðar vinnu við varnar- og öryggismál, ekki síst varðandi svokallaðar fjölþáttaógnir. Hlutverk borgaralegra stofnana undir merkjum almannavarna er grundvallaratriði þegar kemur að varnar- og öryggismálum. Auk þess að tryggja þessum stofnunum fjármagn þarf að tryggja að lagaumhverfið sé með viðeigandi hætti svo þessum mikilvægu verkefnum sé sinnt sómasamlega. Borgaralegir innviðir mega ekki mæta afgangi þó að ábyrgð við uppbyggingu á innviðum og skipulagi hernaðartengdra þátta sé mikilvæg. Gæta þarf að jafnvægi við úthlutun fjármuna til varnartengdra verkefna sem hluta af NATO-samstarfinu og til eflingar borgaralegra þátta.