Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka þetta annað andsvar. Ég fagna þeim tóni sem mér finnst birtast í því. Það er alls ekki einhlítt í þessum sal að því sé fagnað að til standi að gera samning um aukið samstarf við Evrópusambandið á sviði öryggis- og varnarmála. Það hefur beinlínis verið gert tortryggilegt í umræðunni og sett í samhengi við verndartolla og kísiljárn og hvaðeina, þótt það sé raunverulegt hagsmunamál okkar að tengjast þarna beint. Það er alveg rétt að Evrópusambandið er sterkur bakhjarl sérstakrar stofnunar í Helsinki um fjölþátta ógnir sem Bandaríkin voru að draga sig út úr, sem var ekki gott, en þeir drógu sig út úr 88 alþjóðastofnunum fyrir tíu dögum síðan. Þetta er bara hluti af þessari heimsmynd. Ég held að líkt þenkjandi þjóðir þurfi að standa sterkt saman. Gagnvart efnahagslegum ógnum þá þurfum við að vera í bandalögum sem lítil smáþjóð.
Í mínum huga tengist þetta líka stöðugleika í efnahagsmálum og mynt og öðru sem er kannski ekki til umræðu hér. En ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að við ræðum þessa breyttu stöðu, hvað hún kallar á, hvaða gildi við höfum og hvað felst í hugtakinu líkt þenkjandi þjóðir. Ég hvet þingheim og aðra til að fylgjast með þessari umræðu sem er mjög mikil alþjóðlega; ræðu forsætisráðherra Kanada í vikunni, framgöngu Alexander Stubb, forseta Finnlands, (Forseti hringir.) sem vekur mann til umhugsunar í hvert og eitt einasta skipti sem maður heyrir hann tala. (Forseti hringir.) Þannig held ég að við getum komist í gegnum þetta saman og náð niðurstöðu sem breið sátt verður um frá þjóðinni. (Forseti hringir.) En þetta þarf að vera málefnalegt og má ekki vera í skotgröfum.