Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur kærlega fyrir hennar ræðu og fyrir að minnast hér á Úkraínu í pontu Alþingis, nú þegar þessari umræðu er að ljúka. Það var svona það fyrsta en svo langar mig að fá fram, ég vona að ég viti nú svörin við spurningunum, hennar afstöðu til þess sem ég tel mjög mikilvægt, þ.e. að við gerum það sem við getum í fyrsta lagi núna til þess að styðja áfram við Úkraínu meðan á þessu stríði stendur, þessu ólöglega innrásarstríði Rússa, og síðan að styðja við borgaralega innviði í Úkraínu. Nú er stór hluti Kyiv-borgar án rafmagns og hita og mannúðarástandið er orðið mjög alvarlegt og það þarf að bregðast hratt við. Get ég ekki alveg örugglega treyst á stuðning þingmannsins og hans flokks í því? Síðan þegar þessu stríði vonandi lýkur einhvern tímann þá hefur alþjóðasamfélagið og líkt þenkjandi þjóðir eins og við líka hlutverk, t.d. felst það í stuðningi við úkraínskt herlið og því miður til frambúðar. Það felst í stuðningi við fjölþjóðlegt lið sem mun mæta á staðinn til að tryggja að friður haldist og hafa eftirlit með einhvers konar vopnahléi ef því verður komið á og svo felst það líka í því að hraða inngönguferli Úkraínu inn í Evrópusambandið með einhverjum hætti, gefa Úkraínu þá fljótari aðgang mögulega að evrópskum mörkuðum eins og hefur verið boðað, sem er tæki í rauninni til að gefa mönnum eitthvert ljós við enda ganganna. Ég vildi kannski fá fram hjá hv. þingmanni hvort ég megi ekki treysta á hennar stuðning þegar kemur t.d. að þessum atriðum sem eru nauðsynleg, bæði núna á meðan á átökum stendur en líka þegar þeim lýkur dag einn, vonandi fyrr en síðar.