landhelgi, aðlægt belti, efnahagslögsaga og landgrunn.
Frú forseti. Ég sagði fyrir 40 árum að við ættum eftir þrjú landhelgisstríð. Það væri í fyrsta lagi baráttan um yfirráðarétt við Jan Mayen, í öðru lagi um Svalbarða og í þriðja lagi á Rockall-svæðinu. Á öllum þessum svæðum eigum við rétt samkvæmt hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þetta frumvarp er auðvitað að koma allt of seint fram en þó gerist það nú og má þakka það. Eins og frummælandi minntist á tók tvo og hálfan áratug að koma þessu inn í þingið. Það segir náttúrlega dálítið um hvað menn hafa í rauninni verið kærulausir og athyglislausir gagnvart því að koma þessum málum í höfn og laga þetta. Við gerðum samning á sínum tíma, þegar Ólafur Ragnar Grímsson var fjármálaráðherra, um Jan Mayen-svæðið og sérstaklega um loðnuveiðar þar, en það á ekki að horfa bara á fiskveiðar á þessum svæðum. Það eru alls konar efni í jörðu og þótt við vitum ekki hvers virði efnin á botni þessara svæða eru í dag geta þar verið mikil verðmæti fyrir þjóðina eftir 50 eða 100 ár. Ef fiskur gengur inn á Rockall-svæðið og við Svalbarða, eins og hann gerir í einstaka tilfellum, þá er það bara bónus. Við eigum að horfa á þetta út frá því að það séu möguleikar á að nýta auðlindir til framtíðar eins og er verið að gera víða og reyndar oftast á þurru landi. Tæknin verður örugglega þannig í framtíðinni að það verður hægt að nýta jarðefni úr botni sjávar.
Ég vil gera eitt að gamni í restina. Þegar ég les yfir þetta frumvarp þá eru staðsetningar á sex blaðsíðum. Það eru lengd og breidd, punktar. Ég er búinn að vera skipstjóri í 34 ár og botna sáralítið eða ekkert í þessu svo hvernig í ósköpunum ættu venjulegir þingmenn og þeir sem hafa aldrei komið til sjós eða farið í stýrimannaskóla eða flugstjórn að skilja þetta? Það á einnig við því þeir þekkja náttúrlega til í sambandi við lengd og breidd. Í þessu tilfelli hefði þó verið vel við hæfi, þegar menn færu að greiða atkvæði um svona frumvarp, að á skjá væri sýnd mynd af hafsvæðinu og að menn vissu um hvað þeir væru að tala þegar þeir greiddu atkvæði um svona mál.