landhelgi, aðlægt belti, efnahagslögsaga og landgrunn.
Forseti. Ég held að það sé full ástæða til að koma hér upp á eftir hv. þm. Grétari Mar Jónssyni og taka undir að það er ekki fyrir venjulegan dauðlegan mann að átta sig á hvað þær staðsetningar sem fram koma í 1. gr. frumvarpsins nákvæmlega þýða þó svo að ég hafi farið yfir það í ræðu minni að um er að ræða umtalsvert stærra svæði en við vanalega tengjum við yfirráðarétt Íslands, þ.e. fiskveiðilögsöguna. Ég ætla að leyfa mér að taka undir það sjónarmið hv. þingmanns að betra hefði verið að þetta væri sett fram með myndrænum hætti. Ég held að þetta sé málefnalegt og gott sjónarmið sem ég mun koma á framfæri við hæstv. utanríkisráðherra.