sjúkratryggingar og ófrjósemisaðgerðir.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir hennar athugasemdir. Því er til að svara að það var mikið tillit tekið til umsagna þessara aðila sem nefndir hafa verið og sömuleiðis fundað með þeim og frumvarpinu breytt verulega. Til dæmis hvað varðar samningsleysið þá er það 12 mánuðir, eins og var reyndar, en tekið fram að við sérstakar aðstæður sé hægt að framlengja til lengri tíma. Þá er kveðið á um að gjaldskrá taki verðlagsbreytingum og síðan var felld burtu heimild til að stýra magni og heildarendurgjaldi. Varðandi félagaformið þá voru gerðar athugasemdir við að gerð væri krafa um hlutafélag eða einkahlutafélag því að margir eru með samlagsfélag. Þetta var líka rætt og greint og ákveðið að ef umsvif aðila væru lítil, t.d. ekki með háar fjárhæðir, eru í hlutastarfi eða slíkt, þá væri leyfilegt að hafa samlagsfélag. Þarna höfum við ekki komist að raun um hvort við ætlum að miða t.d. við 50 eða 100 millj. kr. árstekjur. Það voru fleiri atriði sem voru rædd, t.d. um upplýsingaskyldu umfram ársreikninga og við verðum að muna það að hér eru ekki undir bara sérgreinalæknar eða sjúkraþjálfarar. Hér eru samningar við hjúkrunarheimili og allir samningar sem eru mjög viðamiklir. Eins og ég sagði þá er ítrekað, í samræmi við ábendingar Ríkisendurskoðunar, að Sjúkratryggingar Íslands fái meiri upplýsingar um kostnað en það var fallið frá að hafa þær eins ítarlegar og var í fyrsta frumvarpinu.