157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

sjúkratryggingar og ófrjósemisaðgerðir.

328. mál
[20:18]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Andersen fyrir hennar athugasemdir. Ef við byrjum á félagaforminu þá er það eðli samlagsfélaga að það er minna gagnsæi um þá fjármuni sem renna inn í félagið í gegnum samningana og þar er ekki skylda að skila ársreikningi. Lög um hlutafélög og lög um einkahlutafélög marka skýra umgjörð um rekstur félaganna og félagaformið aðgreinir rekstur frá eigendum sínum og þá ber þeim að standa skil á ársreikningum. Þetta er ágætlega rakið á bls. 28 í greinargerðinni.

Þegar kemur að því að leggja niður stjórn þá hefur það lengi verið til umræðu og margir lagt það til í fjölda ára. Það er óskýr ábyrgð á milli stjórnar og forstjóra og í staðinn fyrir stjórnina er ætlunin, og það er samkvæmt ráðgjöf sem ráðherra aflaði í kjölfar skýrslu Ríkisendurskoðunar, að settur verði saman öflugur hópur sérfræðinga sem starfar á lykilstofnunum í stjórnsýslu heilbrigðismála. Það verður myndað gæða- og eftirlitsráð heilbrigðisráðherra og maður getur hugsað sér að það verði skipað tveimur starfsmönnum frá ráðuneytinu, tveimur frá sjúkratryggingastofnun, tveimur frá embætti landlæknis og síðan utanaðkomandi sérfræðingi í málefnum heilbrigðiskerfisins sem verði formaður og leiði starfið. Þarna verður lykilatriði að þróa og koma á samstarfstengslum því að þarna skarast verkefni og er hægt að gera mun betur varðandi samstarf, líka að semja drög að nýrri reglugerð um fyrirkomulag samstarfstengsla ráðuneytisins við aðrar stofnanir. (Forseti hringir.) Hér er í rauninni ætlunin að efla innra eftirlit og eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands.