157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

opinber stuðningur við vísindi og nýsköpun.

320. mál
[20:26]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um opinberan stuðning við vísindi og nýsköpun. Í frumvarpinu er lagt til að sett verði ný heildarlög um samkeppnissjóði á sviði vísinda og nýsköpunar og að hlutverk Rannsóknamiðstöðvar Íslands, þ.e. Rannís, verði skilgreint nánar í því samhengi sem þjónustumiðstöð þekkingarsamfélagsins. Samkeppnissjóðir eru skilgreindir í þessu frumvarpi sem afmarkaðir sjóðir sem auglýsa eftir umsóknum og umsækjendum er gefinn kostur á að sækja um styrki í samkeppni við aðra umsækjendur. Úthlutun úr samkeppnissjóðum er byggð á faglegu mati á umsóknum og í samræmi við matsviðmið. Frumvarpið nær hins vegar ekki yfir önnur stuðningsúrræði á sviði rannsókna og nýsköpunar, svo sem skattfrádrátt vegna rannsókna og þróunar eða aðra réttindasjóði.

Markmið frumvarpsins er að styrkja alþjóðlegt samkeppnishæft umhverfi rannsókna og nýsköpunar á Íslandi. Rannsóknir og nýsköpun eru undirstaða framsækinna samfélaga og farvegur framúrskarandi hugmynda að samfélagslegum breytingum. Öflugt rannsókna- og nýsköpunarumhverfi er forsenda þess að hugvit og þekkingargreinar verði fjórða stoð íslensks efnahagslífs til frambúðar, efnahagslífs sem tryggir að ekki eingöngu sé byggt á takmörkuðum auðlindum. Til að svo megi verða er nauðsynlegt að einfalda opinberan stuðning við rannsóknir, vísindi, tækniþróun og nýsköpun, fækka sjóðum og skerpa á hlutverki þeirra svo að bestu hugmyndirnar fái að blómstra.

Á Íslandi eru fjölmörg dæmi um alþjóðlega sókn fyrirtækja sem byggja á íslensku hugviti og eru á heimsmælikvarða og samkeppnishæf á alþjóðasviðinu. Mörg þessara fyrirtækja byggja á hugmyndum sem hafa sprottið upp úr íslenskum grunnrannsóknum hjá stofnunum eða fyrirtækjum og stuðningur hins opinbera á upphafsstigum rannsókna og nýsköpunar hefur verið forsenda þess að þessar hugmyndir og þekking nái að þroskast og nýtast öllu samfélaginu. Á sama tíma og mikilvægt er að hugmyndir fái tíma og fjármagn til að spretta úr grasrótinni er einnig mikilvægt að skapa sterkan farveg fyrir nýsköpun og hagnýtar rannsóknir á áherslusviðum stjórnvalda, farveg sem tryggir stefnumiðaða nýtingu fjármagns til að takast á við brýnar samfélagslegar áskoranir.

Frumvarpið felur í sér, eins og áður sagði, einföldun á sjóðakerfi vísinda og nýsköpunar og skýrari markmið fyrir hvern sjóð. Með þessari breytingu er hugað að fjármögnun allrar nýsköpunarkeðjunnar, frá fyrstu hugmyndum og grunnrannsóknum að hagnýtingu þekkingar og nýsköpunar fyrir samfélag og atvinnulíf. Markmiðið með frumvarpinu er að auka bolmagn samkeppnissjóða á sviði vísinda og nýsköpunar, einfalda sjóðaumhverfi fyrir umsækjendur og ekki síst að bæta yfirsýn stjórnvalda yfir styrkveitingar til að opinbert fé nýtist betur fyrir íslenskt samfélag.

Í frumvarpinu er lagt til að lög um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003, og lög um Tækniþróunarsjóð, nr. 26/2021, falli brott sem og ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga um opinberan stuðning við nýsköpun, nr. 25/2021, um Lóu – verkefnastyrki, og sett verði ein heildarlög um umhverfi samkeppnissjóða á sviði rannsókna og nýsköpunar. Frumvarpið skerpir einnig á hlutverki Rannís, eins og áður sagði, sem þjónustumiðstöðvar þekkingarsamfélagsins, stofnunar sem veitir alhliða þjónustu við samkeppnissjóði og alþjóðlegar áætlanir á sviði rannsókna, nýsköpunar, menntunar og menningar og safnar jafnframt gögnum um umsóknir og styrkveitingar hins opinbera.

Frumvarpið styður við markmið ríkisstjórnarinnar um einfaldari stjórnsýslu og sameiningu sjóða. Í drögum að atvinnustefnu, sem birt voru í samráðsgátt stjórnvalda, kemur fram að samkeppnissjóðir til rannsókna og nýsköpunar skuli vera öflugir og aðgengilegir og er þetta frumvarp í samræmi við það markmið. Einnig eru sjóðirnir helsta verkfæri stjórnvalda við innleiðingu á stefnu um vísindi, tækniþróun og nýsköpun til 2035. Frumvarpið styður við markmið fjármálaáætlunar um betri nýtingu fjármagns og sókn á sviði vísinda og nýsköpunar, m.a. með markvissari samnýtingu innviða.

Virðulegur forseti. Helstu nýmæli í frumvarpinu eru sem hér segir: Samkeppnissjóðum sem heyra undir ráðherra á sviði rannsókna og nýsköpunar verður fækkað úr sjö í fjóra. Sjóðirnir verða þá eftirfarandi: Í fyrsta lagi er Rannsóknasjóður sem fjármagnar grunnrannsóknir og rannsóknatengt framhaldsnám. Sjóðurinn eflir vísindastarf á Íslandi og tryggir nýliðun. Í öðru lagi er nýr sjóður sem mun heita Nýsköpunarsjóður sem fjármagnar nýsköpun á fyrstu stigum, styður við íslenskt þekkingarsamfélag og styrkir verkefni sem eru líkleg til að skila langtímaávinningi. Nýsköpunarsjóður verður til með sameiningu Tækniþróunarsjóðs og Nýsköpunarsjóðs námsmanna. Í þriðja lagi er það Innviðasjóður sem styður við uppbyggingu og samnýtingu rannsókna- og tækniinnviða. Hlutverk hans er útvíkkað frá því sem nú er og nær nú einnig til tækniinnviða en ekki eingöngu til rannsóknainnviða. Þetta er gert til þess að styðja enn betur við sprota og frumkvöðla sem víðast um land og efla samstarf á milli stofnana og fyrirtækja. Í fjórða lagi er það svo nýr sjóður sem heitir Áherslusjóður sem skapar öflugan farveg fyrir áherslumál stjórnvalda á hverjum tíma á sviði rannsókna og nýsköpunar og lausn skilgreindra áskorana. Áherslusjóður sameinar markáætlun á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar, Lóu – nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina og Fléttuna, styrki til innleiðingar á nýsköpun í heilbrigðisþjónustu.

Samhliða fækkun sjóða er stjórnsýsla þeirra t.d. samræmd, bæði varðandi skipan stjórna og fagráða, tímalengd skipana og viðmið um úthlutunarreglur. Þá er einnig lögfest meginregla um opinn aðgang að niðurstöðum verkefna, þar með talin gögn sem eru fjármögnuð fyrir opinbert fé, samnýtingu rannsókna- og tækniinnviða og birtingu áhrifamats á þriggja ára fresti. Að auki koma fleiri aðilar að tilnefningum til stjórna sjóðanna en nú er. Til einföldunar felur frumvarpið í sér að þátttaka í alþjóðlegum samfjármögnunaráætlunum á sviði rannsókna og nýsköpunar verði fjármögnuð í gegnum Áherslusjóð en ákvörðun um þátttöku verði engu að síður áfram hjá stjórnvöldum.

Frumvarpið skilgreinir einnig Rannís sem þjónustumiðstöð þekkingarsamfélagsins sem mun sjá um umsýslu opinberra sjóða og alþjóðlegra áætlana, miðla upplýsingum um tækifæri og veita umsækjendum og styrkþegum þjónustu ásamt því að safna og birta töluleg gögn og greiningar á styrkveitingum opinberra samkeppnissjóða. Þarna er í raun og veru verið að færa hlutverk Rannís nær því í lögum sem nú er. Í frumvarpinu er lagt til að heiti stofnunarinnar verði breytt úr Rannsóknamiðstöð Íslands í Rannís, sem er auðvitað það heiti sem þekkt er og hefur verið notað síðustu ár.

Virðulegur forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum og legg til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar og 2. umræðu.