opinber stuðningur við vísindi og nýsköpun.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Það stóð til að hæstv. ráðherra myndi mæla fyrir þessu máli hér einhvern tímann um daginn og á þeim degi voru líka annars konar breytingar á nýsköpunarumhverfinu ræddar þar sem hæstv. fjármálaráðherra mælti fyrir breytingum er varða endurgreiðslur á rannsókna- og þróunarkostnaði. Allt er þetta nú að einhverju leyti tengt því að stuðningur við nýsköpun er af ýmsum toga. Einn hlutinn er sá sem fjallað er um í þessu frumvarpi og annar er endurgreiðsla vegna rannsókna og þróunar og svo eru örugglega einhverjar fleiri leiðir líka.
Í fljótu bragði finnst mér það frumvarp sem hér liggur fyrir hljóma vel, þ.e. að skýra og gera hlutina skilmerkilegri er eitthvað sem talar við mitt hjarta. En ég verð að fá að segja það, virðulegur forseti, að ég hef áhyggjur af málaflokknum nýsköpun vegna þess að hér hefur í fjárlögum verið dregið úr fjármagni til slíkra verkefna. Það hefur þá frekar verið á því sviði er lýtur að endurgreiðslu vegna rannsókna og þróunar og ég átti ágætissamtal við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra um það.
En ég er með tvær spurningar. Önnur spurningin er þessi: Er það markmið ríkisstjórnarinnar að draga úr því fjármagni sem nýtt er við endurgreiðslu vegna rannsókna og þróunar og styðja þá frekar við samkeppnissjóðina eins og fjallað er um hér?
Hin spurningin er þessi: Í greinargerð með frumvarpinu, á bls. 16, segir, með leyfi forseta: „Helstu mælikvarðar á árangur og útkomu breytinganna sem hér eru lagðar til tengjast styrkingu þekkingarsamfélags á Íslandi sem mæla má t.d. með auknum útflutningstekjum ...“ Í næstu setningu segir svo: „Hægt væri að notast við ýmsa þekkta mælikvarða á nýsköpun, svo sem þá mælikvarða sem birtast undir málefnasviði 7.1 í fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030 …“ Ég spyr: Hverjir eru þessir mælikvarðar sem notast er við í fjármálaáætlun?