opinber stuðningur við vísindi og nýsköpun.
Virðulegur forseti. Markmið ríkisstjórnarinnar er alveg skýrt. Það er að styðja áfram vel við nýsköpun og rannsóknir í landinu og fylgja áætlun Vísinda- og tækniráðs um að fyrir 2035 verði það 3,5% af vergri landsframleiðslu. Hv. þingmaður ræðir töluvert um endurgreiðsluhlutann sem er, eins og kom fram hjá þingmanni, á borði fjármálaráðherra þó að stuðningurinn fari í gegnum okkur að einhverju leyti. Það eru engin áform um að draga úr þeim stuðningi. Það er hins vegar verið að skilgreina betur hvað er stuðningshæft og hvað ekki. Endurgreiðslur úr þeim sjóði fara bara til þeirra sem eiga rétt á endurgreiðslu úr honum. Ástæðan fyrir því að minna var veitt úr honum á síðasta ári var auðvitað bara sú að umsóknirnar voru þess eðlis að það gaf ekki tilefni til þess að veita meira úr honum.
Þeir sjóðir sem ég er hér að fjalla um eru annars eðlis. Að stærstum hluta eru þetta rannsóknasjóðir, grunnrannsóknasjóðir, sem hafa bara eitthvert ákveðið fjármagn á bak við sig og það er veitt úr þeim á samkeppnisforsendum eins og þingmaðurinn nefndi. Samanlagt munu þessir sjóðir geta stutt við hugvit og nýsköpunarstarfsemi frá fyrstu hugmyndum og þangað til að verkefnin verða burðarhæf og samkeppnishæf. Eftir það leita þessir aðilar meira í endurgreiðslusjóðina.