157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

opinber stuðningur við vísindi og nýsköpun.

320. mál
[20:43]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla að tjá mig aðeins um þetta mál. Í fyrsta lagi til að útskýra, ef ég er ekki nógu skýr — þetta tengist. Ef staðan er sú, eins og hæstv. ráðherra segir og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra segir líka, að ástæðan fyrir því að dregið var úr fjármagni vegna endurgreiðslu rannsókna og þróunar sé sú að umsagnirnar hafi ekki verið nægilega góðar — því að árangurshlutfallið fór niður og það var mikil stífla hjá Rannís þannig að einhver var ástæðan fyrir því. Ef ástæðan er sú að umsóknirnar sem bárust hafi ekki verið nógu góðar þá er það áhyggjuefni, myndi ég halda. Ef við ætlum að reiða okkur á nýsköpun í framtíðinni og ef hagvöxturinn okkar á að koma þaðan er mikilvægt að góð nýsköpunarverkefni séu í gangi og verkefni sem fá þessa endurgreiðslu. Ég veit að þetta er kannski aðeins ótengt nákvæmlega því máli sem hér um ræðir og ég vísa til fyrri ræðu minnar, þegar við ræddum það mál. En samkeppnissjóðirnir eru oft það sem kemur á undan. Það eru meira stærri fyrirtækin sem eru þá búin að koma sér upp einhverjum ferlum og eru þar af leiðandi að fá endurgreiðsluna. Samkeppnissjóðirnir eru þar af leiðandi mjög mikilvægir.

Virðulegur forseti. Ég spurði út í mælikvarðana og það var ekki að ástæðulausu. Það var nefnilega vísað í mælikvarða í fjármálaáætlun. Ég ætla að sýna ykkur að í fjármálaáætlun, undir málefnasviði 7.1, eru engir mælikvarðar. Það eru örugglega allir búnir að gleyma þessu og örugglega enginn að spá í þetta hér klukkan korter í níu á þessum fimmtudegi. En ég verð að fá að segja: Þetta er það sem við vorum að mótmæla hér þegar mælt var fyrir þessari fjármálaáætlun. Það er stórt atriði að þingmenn geti fylgst með því og haft ákveðið eftirlit með því að ráðherrar nái fram þeim markmiðum sem stefnt er að.

Ég er hér með eldri fjármálaáætlun og þar eru mælikvarðar undir málaflokki 7.1, hér er tafla. Það er búið að ákveða hvert markmiðið er. Hér er til að mynda talað um vísindastarf á heimsmælikvarða, fjölda rannsókna- og þróunarstarfa í fyrirtækjum og stofnunum, fjölda sambirtinga í alþjóðlegum ritrýndum tímaritum, opinn aðgang að rannsóknaniðurstöðum, fjölda veittra einkaleyfa, styrkfé í lausnir við samfélagslegum áskorunum, styrki úr samstarfsáætlun ESB á hvern íbúa og árangurshlutfall í ESB-áætlunum. Þarna eru viðmið, hér er staðan eins og hún var það árið, viðmið á næsta ári og hverju við ætlum að ná fram í framtíðinni. Þetta eru mælikvarðar, þetta er árangurshlutfall. Kannski er þetta frumvarp bara svo gott og greinargerðin sem því fylgir, kannski hefur hluti af því verið skrifaður í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar sem birti raunverulega mælikvarða með fjármálaáætlun.

Virðulegur forseti. Mér finnst nauðsynlegt að benda á þetta og þetta er ekki bara eitthvert nöldur; stundum er maður farinn að hljóma eins og biluð plata. Þetta skiptir alveg svakalega miklu máli. Þetta er ein ástæðan fyrir því að ég hef haldið hér margar ræður frá því að ég settist á þing og hrósað okkur fyrir lög um opinber fjármál, hrósað okkur fyrir það nýja verklag sem við tókum upp með lögunum þar sem sett er fjármálastefna, fjármálaáætlun og síðan fjárlög hvers árs. Allt styður þetta hvað annað og í fjármálaáætlunum komu fram markmið um hvern málaflokk. Þau voru ekki alltaf fullkomin og þetta hefur verið í þróun á síðustu árum. Stundum var gert grín að því í ræðum hér hvernig markmiðin væru sett fram. En það voru þó markmið. Það voru viðmið og það var jafnvel einhver ábyrgðaraðili fyrir þessum markmiðum. Í mínum huga skiptir þetta allt máli, og þetta hef ég lært í háskóla og í störfum mínum, þegar verið er að mæla hvaða markmið verið er að setja fram og hvernig eigi að ná þeim.

Virðulegur forseti. Ég veit að hæstv. ráðherra þekkir vel til þess hvernig þessar fjármálaáætlanir hafa verið unnar í gegnum tíðina. Ég ætla að óska honum góðs gengis með þetta mál og málin sem hann er að fást við í sínu ráðuneyti. En ég ætla líka að hvetja til þess að þegar ríkisstjórnin leggur fram fjármálaáætlun að nýju þá séu mælikvarðarnir birtir með fjármálaáætluninni sjálfri svo að þingmenn geti rætt af einhverju viti við alla ráðherra í ríkisstjórninni um þeirra málaflokk, þau markmið sem sett eru fram, þá mælikvarða sem settir eru á þau, og þá fylgst með því í framtíðinni hvernig það gengur eftir.