157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

tenging bóta almannatrygginga við launavísitölu.

[13:48]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurninguna. Svo það sé sagt þá deili ég ekki þessum áhyggjum. Það er sátt um þessa aðferð í ríkisstjórn og að fara þessa leið. Það eru heilmargir aðrir óvissuþættir líka bara varðandi ríkisfjármálin, þróun efnahagsmála o.s.frv., þannig að ég deili einfaldlega ekki þessum áhyggjum. Þar sem ríkir fullkomin sátt um málið við ríkisstjórnarborðið þá munum við að sjálfsögðu styðja þetta mál heils hugar. Það er ómögulegt að segja nákvæmlega til um það fyrir fram hver launaþróun verður allra næstu árin þó að við getum auðvitað séð ákveðnar vísbendingar um slíkt, bæði hvað varðar sögulegt launaskrið og sömuleiðis þá langtímakjarasamninga sem voru undirritaðir á vormánuðum 2024. (Forseti hringir.) Stutta svarið er bara að ég deili einfaldlega ekki þessum áhyggjum og það er samstaða um málið í ríkisstjórn.