framkvæmd við veitingu ríkisborgararéttar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og geri mér grein fyrir því að þetta er eflaust ofarlega í huga fólks sem situr í allsherjar- og menntamálanefnd núna, þá kannski sérstaklega undirnefndinni sem er að fara yfir fjöldann allan af umsóknum. Vissulega hefur þessi hópur stækkað. Það hefur bara ýmislegt breyst í okkar kerfi á undanförnum 10–15 árum þegar kemur að fólki sem er að sækja um ríkisborgararétt, dvalarleyfi eða annað slíkt. Þetta er auðvitað svolítið vandmeðfarið almennt, þessi ákvarðanataka. Við erum með kerfi sem framkvæmdarvaldið heldur utan um og er lögbundið og snýr að veitingu ákveðinna réttinda, vissulega. Síðan hefur það verið í höndum Alþingis að sinna þessum hluta og það hefur í gegnum tíðina — það hefur verið mín tilfinning, það kann að vera að það sé að breytast — verið svo til þverpólitísk sátt um þessa veitingu, a.m.k. hafa allir flokkar á Alþingi hingað til tekið þátt í afgreiðslu þessara mála, sama hver hefur verið í ríkisstjórn, bara svo það sé sagt.
Ég held að útgangspunkturinn með þessu kerfi upphaflega, þó að ég þekki ekki alla sögu langt aftur í tímann, hafi verið að grípa þá einstaklinga sem í einhverjum tilfellum féllu milli skips og bryggju, pössuðu ekki alveg inn í boxin sem voru í kerfinu. Ég held að það hafi verið útgangspunkturinn. Ég hef hins vegar heyrt af þessari gagnrýni, sérstaklega eftir að umsóknum fjölgaði, og átta mig alveg á því að fólk hafi t.d. velt fyrir sér, og ég hef orðið vör við það þó að ég hafi ekki sjálf tekið þátt í vinnunni, áhyggjum af yfirsýn, tengslum á milli kerfa, upplýsingum um ákveðna aðila. Ég held að það séu klárlega svoleiðis þættir sem megi breyta í þessu kerfi. Ég hef a.m.k. verið, þótt við höfum ekki rætt þetta neitt sérstaklega í ríkisstjórn, enda hefur þetta verið á borði Alþingis, alveg opin fyrir því að við skoðum hvers konar upplýsingar liggja þarna að baki og hvernig þetta er unnið. Það er þá bara upphafið að slíku samtali.