157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

afnám áminningarskyldu opinberra starfsmanna.

[13:57]
Horfa

Brynjar Níelsson (S):

Virðulegi forseti. Hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hefur boðað framlagningu frumvarps um afnám áminningarskyldu opinberra starfsmanna í lok næsta mánaðar samkvæmt uppfærðri þingmálaskrá. Það er fagnaðarefni að ráðherrann hafi tekið upp málflutning okkar Sjálfstæðismanna í þessum efnum en fyrir liggur frumvarp um afnám áminningarskyldu opinberra starfsmanna frá hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur og hefur gert frá því í september síðastliðnum. Nú hafa þessar fyrirætlanir fjármála- og efnahagsráðherra hins vegar sætt harðri gagnrýni frá verkalýðshreyfingunni. Í sameiginlegri yfirlýsingu stærstu verkalýðsfélaga landsins kemur fram að íslensk verkalýðshreyfinga hafni þessum vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar og leggist alfarið gegn áformum hennar. Þá segir í umsögn BSRB um þessi áform að þetta séu „óásættanleg vinnubrögð og ekki til þess fallin að stuðla að sátt né friði á vinnumarkaði“. Því vil ég spyrja hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra hvort hann sé ekki sammála okkur Sjálfstæðismönnum, og þá væntanlega fjármála- og efnahagsráðherra, um að frumvarpið sé hið besta mál og að verkalýðshreyfingin sé úti í móa í þessu máli.