157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

afnám áminningarskyldu opinberra starfsmanna.

[13:58]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Brynjari Níelssyni fyrir þessa ágætu spurningu. Það sem verkalýðshreyfingin hefur helst til gagnrýnt er fyrst og fremst það má kalla það samráðsleysi ef lesa má helstu umsagnir við væntanlegt frumvarp.

Varðandi persónulega skoðun mína á frumvarpinu sem slíku þá held ég að það sé hollt að endurskoða laga- og regluverk um vinnumarkaðinn. Það er auðvitað æskilegt að það sé gert í góðu samráði. Það hefur verið venjan. Ég skil þessa gagnrýni, hún á fullkomlega rétt á sér. Annars get ég ekki svarað frekar fyrir frumvarp fjármálaráðherra, hann verður væntanlega að gera það sjálfur.