157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

afnám áminningarskyldu opinberra starfsmanna.

[14:00]
Horfa

Brynjar Níelsson (S):

Virðulegur forseti. Ég skil þetta svar þannig að hæstv. ráðherra sé ekki sammála efnahags- og fjármálaráðherra og hann sé sammála því að þetta sé eiginlega ótækt eins og verkalýðshreyfingin telur að þetta sé. Það er fróðlegt, ég er búinn að sitja hér í nokkrar mínútur, að hæstv. ráðherra hefur ekki verið sammála fjármála- og efnahagsráðherra í neinu sem hér hefur komið til tals. [Hlátur í þingsal.] Ég reikna með að hann sé ekki sammála neinum öðrum ráðherra yfirleitt en ég hefði gjarnan viljað fá að vita hvort hæstv. ráðherra sé sammála því að eitthvað þurfi að gera í þessum málum, það sé ótækt að það sé svona mikill munur á réttindum fólks í opinbera geiranum og einkageiranum.