157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

afnám áminningarskyldu opinberra starfsmanna.

[14:01]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari spurninguna þar sem hann túlkaði svör mín ansi frjálslega. Það sem ég sagði í mínu fyrra svari var að það væri auðvitað eðlilegt að skoða löggjöfina og regluverkið í kringum vinnumarkaðinn reglulega. Það er auðvitað æskilegt að það sé gert í góðu samtali og samráði við alla aðila. Fjármálaráðherra hefur verið sammála varðandi þá aðferðafræði að koma í veg fyrir frekari kjaragliðnun hjá elli- og örorkulífeyrisþegum og þá leið sem er verið að fara er ríkisstjórnin sammála um að fara og fjármagna.

Varðandi vinnumarkaðinn þá verður auðvitað fjármálaráðherra að svara fyrir sitt eigið frumvarp. Ég get ekki svarað fyrir hann en ég tel eðlilegt að lög og reglur um leikreglur á vinnumarkaði séu skoðuð reglulega. Frumvarpið mun koma hingað inn í þingið og fá þinglega meðferð og fjármálaráðherra mun svara fyrir það þegar að því kemur.