atvinnulíf á landsbyggðinni.
Virðulegur forseti. Það eru víða verkefni. Áður en ég beini fyrirspurn minni til hæstv. forsætisráðherra langar mig að senda góðar kveðjur til strákanna okkar úti í Svíþjóð sem eru einmitt að fara að takast á við risaverkefni þar.
En verkefnin eru víða og okkur er öllum ljóst að staðan í efnahagsmálum landsins er kannski allt önnur en vonir stóðu til við upphaf þessa kjörtímabils. Verðbólgan er þrálátari og er á uppleið, hagvöxtur minni og atvinnufjárfesting sömuleiðis. Því er ljóst, virðulegur forseti, að atvinnulífið stendur frammi fyrir verulegum áskorunum umfram þær sem væntingar höfðu verið gefnar um. Má þar t.d. nefna stóriðjuna, bæði Norðurál, sem er í vanda en leysist vonandi, og Elkem, svo ekki sé minnst á PCC á Bakka. Sjávarútvegur er sömuleiðis, með hærra veiðigjaldi og skertum kvóta, í brekku og þá er ég að tala um, virðulegur forseti, lítil og meðalstór sjávarútvegsfyrirtæki. Umræðan um að taka byggðakvóta, sérstakan byggðakvóta og skel- og rækjubætur er svo sannarlega ekki að hjálpa til við þær væntingar sem þessi fyrirtæki eru með. Íslenskur landbúnaður er sömuleiðis í vörn og mikilvægt að nýir búvörusamningar verði með þeim hætti að bændasamtök og íslenskir bændur geti staðið stolt upp frá borði og hafið sókn í íslenskri matvælaframleiðslu. Þar er svo sannarlega verk að vinna. Ferðaþjónustan hefur lýst yfir miklum áhyggjum af stöðunni og má þar rifja upp áhyggjur bílaleiga af nýkomnu kílómetragjaldi og hærra vörugjaldi, áhyggjur sem snerust m.a. um að hækkanir hefðu áhrif á dreifingu ferðamanna út á land.
Virðulegur forseti. Það sem þetta á allt sammerkt er að þessi fyrirtæki eru nánast öll úti á landi, fyrir utan áhrifasvæði höfuðborgarinnar. Því er spurning mín þessi: Hvernig ætlar hæstv. ríkisstjórn að bregðast við þeirri alvarlegu stöðu sem er að teiknast upp gagnvart atvinnulífi á landsbyggðarinni?