157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

atvinnulíf á landsbyggðinni.

[14:05]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég ætla að fá að byrja á að taka undir kveðju hv. þingmanns til strákanna okkar. Ég segi bara: Áfram Ísland.

Ég heyri þessa upptalningu hjá hv. þingmanni og ég hef líka haft áhyggjur af stöðunni, t.d. í stóriðjunni. Þetta er flókin staða og hún er tengd stöðu á alþjóðamörkuðum og sértækum, hvað á ég að segja, áskorunum sem komu upp hjá einstaka fyrirtækjum og eru kannski ekki fyrirsjáanlegar. Ég er þeirrar skoðunar, og þessi ríkisstjórn í heild er þeirrar skoðunar, að við getum ekki verið að hlaupa undir bagga með stökum fyrirtækjum. Við sköpum rekstrarumhverfi en getum ekki verið að hlaupa undir bagga með stökum fyrirtækjum. En í raun fórum við t.d. í ákveðnar aðgerðir til að styrkja umhverfið á Bakka og erum vonandi að sjá núna jákvæðar afleiðingar af því. Við höfum verið í virku samtali við sveitarstjórnina þar til þess að liðka fyrir því sem koma skal eða til að geta gripið fólk á svæðinu ef PCC heldur ekki áfram starfsemi.

Ég vil líka segja að ég skil alveg að það komi upp áhyggjur og að það heyrist raddir þegar það er ráðist í kerfisbreytingar. Þessi ríkisstjórn er að ráðast í kerfisbreytingar, reyndar sem sumar fyrri ríkisstjórnir töluðu um í áraraðir; í ferðaþjónustu, kílómetragjaldi og öðru. Já, við fórum í þessa innleiðingu á veiðigjaldinu og eðlilega heyrast ákveðnar gagnrýniraddir. Það er erfitt að fara í svona kerfisbreytingar. En útgangspunkturinn var fyrst og fremst að skapa stöðu til að sækja fram, ekki vera bara í stöðugri vörn á fyrri kerfum. Við erum að sækja fram. Við erum að loka fjárlagagatinu. Við erum að skapa aðstæður fyrir lækkun vaxta. Við erum að skapa aðstæður til þess að styrkja vegakerfið, styrkja innviðina okkar úti á landi vegna þess að allir sem maður talar við í þeim dreifðu byggðum sem hv. þingmaður er að tala um segja manni í lok dags: Það er sama hvaða fyrirtæki kemur þarna inn, ef vegakerfið stendur ekki undir sér, ef opinbera þjónustan stendur heldur ekki undir sér, (Forseti hringir.) þá flytur fólk ekki á svæðin. Þannig að þetta er samvinnuverkefni þessara aðila (Forseti hringir.) og við ætlum að vera í sókn, ekki bara í vörn.