atvinnulíf á landsbyggðinni.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. forsætisráðherra kærlega fyrir svarið. Það er ljóst að ég þarf miklu meira en þessa einu mínútu til þess að fara í djúpar umræður við hæstv. forsætisráðherra um það sem þar kom fram. Þar deilum við kannski ekki alveg sömu sýn og sömu skoðun en það er allt í lagi.
Það sem mig langaði hins vegar að spyrja um í seinna andsvari er varðandi rekstrarumhverfið sem hæstv. ráðherra kom inn á. Þar langar mig að nefna, af því að atvinnumál á landsbyggðinni og byggðamál eru nátengd, norsku leiðina sem oft hefur verið talað um, bæði hér í þinginu og ekki síður úti á landi. Hún gengur út á að fyrirtæki og einstaklingar borgi lægri skatta eftir því sem fjær dregur áhrifasvæði höfuðborgarinnar, því það er alveg ljóst að við sem þar búum munum aldrei ná fullum jöfnuði varðandi þjónustu, hvorki aðgengi að henni né í raun og veru þá þjónustu sem er veitt. Er ekki eðlilegt að íbúar úti á landi (Forseti hringir.) sem eru fjær þjónustunni borgi lægri skatta, fyrirtæki sem eru þar borgi lægri skatta þar sem þjónustan er ekki sú sama? (Forseti hringir.) Í Noregi hefur verið farið í þessa aðgerð og hún gefist vel. Hvernig líst hæstv. forsætisráðherra á þessa hugmynd?