framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna um þetta mál sem ég tel að sé í sjálfu sér efnislega tímabært en ég er þó ekki viss um formið. Þetta er umfangsmikið mál sem varðar mikilvæg persónuleg réttindi borgaranna. Eins og rakið er í greinargerð og hæstv. ráðherra gerði á þetta mál rætur að rekja tíu ár aftur í tímann ef marka má greinargerðina. Það eru a.m.k. tíu ár síðan menn fóru að ræða nauðsyn þess að koma á því fyrirkomulagi sem hér er kveðið á um.
Ég ætla hins vegar að virða hæstv. ráðherra það til vorkunnar að hann er bæði nýkominn inn í sitt ráðuneyti og líka kannski það að þetta er mál sem í fljótu bragði, myndi ég segja, á kannski illa undir ráðuneyti hæstv. ráðherra. Eins og rakið er hér hafa mörg ráðuneyti komið að þessu máli en ég rek strax augun í það að þegar er komin umsögn um málið sem bendir á mjög augljósan galla á frumvarpinu, þ.e. réttarfarslegan, sem er sá að í 17. gr. frumvarpsins er t.d. talað um skipun tilsjónarmanns og hvernig eigi að hátta málum komi fram aðfinnslur um slíkan tilsjónarmann. Hins vegar er ekki kveðið á um neinar málsmeðferðarreglur eða hvernig fara eigi með úrskurð héraðsdómara í þeim efnum, hvernig farið er með kærur slíks úrskurðar og þar fram eftir götunum. Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra hvort t.d. réttarfarsnefnd hafi farið yfir þetta mál sérstaklega. Ég myndi telja að það hefði verið nauðsynlegt við samningu frumvarpsins að réttarfarsnefnd hefði lagt eitthvert mat á þetta, sérstaklega í ljósi þess, og líka þrátt fyrir að í ljósi þess, að hæstv. dómsmálaráðherra boðar hér í þessu frumvarpi frumvarp um breytingu á hegningarlögum, (Forseti hringir.) sem er kannski af öðrum toga en þetta frumvarp.