157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

Störf þingsins.

[15:08]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Núverandi ríkisstjórn hefur á því rúma ári sem hún hefur verið við stjórnvölinn aðallega einbeitt sér að því að hækka skatta. Þrátt fyrir loforð þessara flokka, a.m.k. sumra, fyrir kosningar um að hækka ekki skatta þá hefur það verið okkar helsta verkefni hér á þingi að fjalla um skattahækkunarfrumvörp ríkisstjórnarinnar. Okkar helsta verkefni hefur verið að þvarga um skattahækkunarfrumvörp þessarar ríkisstjórnar. Það er eins og að tekjuöflunarhlið ríkisfjármálanna sé eitthvert sérstakt vandamál. Nei, frú forseti, vandamálin eru á útgjaldahlið ríkisfjármálanna. Og jú, ríkisstjórnin fór af stað með sérstakt átak í að safna hugmyndum frá almenningi um hvar unnt væri að spara í ríkisrekstrinum. Reyndin varð auðvitað sú að allt voru þetta ómögulegar tillögur og það má eflaust finna þær nú í einhverjum kassa uppi í Stjórnarráði þar sem þær rykfalla. Nei, frú forseti, ríkisstjórninni er fyrirmunað að taka á útgjaldahlið ríkisfjármálanna sem þó blasir við öllum að þar þarf að láta hendur standa fram úr ermum ef ná á niður verðbólgu og lækka vexti. Það blasir við öllum að það er eina leiðin, frú forseti, til að unnt sé að koma á móts við ungt fólk og fjölskyldur sem eru að reyna að koma sér þaki yfir höfuðið.

Miðflokkurinn hefur margoft bent á að taka verði á ákveðnum málaflokkum í ríkisrekstrinum þar sem útgjöld ríkisins eru óhófleg og má þar nefna stjórnlaus útgjöld til loftslagsmála, hælisleitendamálin og þrotlausa hækkun útgjalda til opinbera kerfisins.