Störf þingsins.
Ég vil fá að vekja athygli þingheims á þeim fjölmörgu umsögnum sem bárust í samráðsgátt stjórnvalda um frumvarp til laga um lagareldi. 908 umsagnir bárust auk tæplega 1.100 umsagna erlendis frá en þar fara ekki saman magn og gæði. Margar umsagnir eru tví- og þríteknar og við fyrstu sýn má áætla að þetta séu um 70% umsagna um frumvarpið. Þess má geta að inn á milli í umsagnaflóðinu er að finna margar góðar athugasemdir um málið sem eru mjög gagnlegar. Eitt er þó athyglisvert sem rekja má aukinn fjölda umsókna til; auglýsingaherferðar Verndarsjóðs villtra laxastofna, sem er fjármagnaður af erlendum aðilum. Auglýsingaherferðin sem beinist gegn lagareldisfrumvarpi stjórnvalda er af slíku afli að ég man ekki eftir öðru eins. Það er útvarp, sjónvarp, netmiðlar, auglýsingaskilti, samfélagsmiðlar og allar leiðir farnar. Einn af erlendum styrktaraðilum verndarsjóðsins, útivistarmerkið Patagonia, gekk svo langt að leiðbeina viðskiptavinum sínum um hvernig ætti að skila inn umsögn og það var hægt að fá eina slíka skrifaða með hjálp spjallmennis. Þetta eru óeðlileg erlend afskipti af íslenskri löggjöf. Hér eru erlendir aðilar að reyna að hafa vit fyrir okkur Íslendingum í því hvernig við búum vaxandi atvinnugrein samkeppnishæf skilyrði. Sama og þegið. Fjölmargar umsagnir, til að mynda frá innlendum veiðifélögum, standa fyrir sínu.
Frumvarpi um lagareldi er ætlað að færa núverandi löggjöf til betra horfs. Markmiðið er að styrkja lagaumgjörðina til að sporna gegn neikvæðum áhrifum á lífríki en stuðla um leið að aukinni verðmætasköpun. Þessir þættir geta vel farið saman ef vandað er til verka. Atvinnugreinin er komin til að vera. Það eru þættir í frumvarpinu sem þarf að skoða gaumgæfilega en hagsmunir Íslands felast í sterkri umgjörð. Fiskeldi er ein af grunnstoðunum í atvinnustefnu stjórnvalda. Útflutningsverðmæti laxaafurða voru tæpir 50 milljarðar á síðasta ári. Það starfa um 800 manns í greininni sem hefur haft jákvæð áhrif á byggðaþróun, bæði á Vestfjörðum og Austfjörðum. Framtíðarþróun og verðmætasköpun í fiskeldi verður að byggja á skýrum kröfum um sjálfbæra nýtingu með áherslu á traust eftirlit, vöktun og rannsóknir. Þetta er lykilatriði svo fiskeldi fái þrifist í sátt við náttúruna og villta laxastofna.(Forseti hringir.)
Virðulegur forseti. Ég geld varhuga við því að erlendir aðilar séu óumbeðnir að reyna að hafa áhrif á íslenska löggjöf.