Störf þingsins.
Frú forseti. Menntamál hafa verið töluvert til umræðu síðastliðna mánuði. Frá því að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur verið við völd hefur 40% af þingflokki Flokks fólksins verið mennta- og barnamálaráðherra, eða fjórir talsins, sem er Íslandsmet í óstöðugleika. Ítrekað er verið að setja nýtt fólk inn í þennan mikilvæga og afar viðkvæma málaflokk sem er undirstaða 50% hagvaxtar í landinu.
Í nýjustu skýrslu OECD um menntamál kemur fram að ef ekki verði snúið af þessari leið þá muni framleiðni í landinu minnka um a.m.k. 5% næstu árin. Hvað eru 5%? Það eru 250 milljarðar árlega. Frasinn um að engar skyndilausnir séu til er notaður til að þagga niður umræðuna og meira af því sama er boðað, bara aðeins dýrara. Vandinn er mikill en það eru til skólar þar sem hefur gengið vel og hafa náð miklum námsárangri; börnum líður vel, einelti er lágt árum saman, eða milli 2–3% á meðan það er 14–15% annars staðar. 97% foreldra eru ánægðir með skólann og ódýrir skólar fylgja með. Þetta eru ekki skyndilausnir sem hafa áorkað þessu heldur góðir starfsmenn, skýr stefna og samvinna alls skólasamfélagsins. Þetta er hægt og þetta er í gangi. Það þarf bara að opna augun.
Hvað hefur ríkisstjórnin áorkað í málaflokknum á þessu ári, af því sem er liðið? Það hefur kvótasett framhaldsskólana og minnkað sérhæfingu þeirra. Það er þeirra árangur. Hvaða ný mál eru í pípunum hjá mennta- og barnamálaráðherra á öllum þessum þingvetri? Það eru tvö ný mál sem er líklegast annað Íslandsmet í framkvæmdaleysi í þessum mikilvæga málaflokki. Húsið brennur og við notum teskeið og bolla til að slökkva eldinn. Það er algerlega ljóst að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur (Forseti hringir.) hefur hvorki áhuga né metnað þegar börn og ungmenni eru annars vegar. En það eru líklegast engar fréttir fyrir flesta.