fundarstjórn forseta.
Virðulegur forseti. Í vetur hefur verið ágætur starfsandi og friður hér í þessu þingi. Nú erum við til að mynda að ræða útlendingamál sem hafa á fyrri stigum skapað hér mikil átök og langa umræðu en tiltölulega mikil og breið sátt er um núna. Þá sjáum við að búið er að setja svokallað grásleppumál á dagskrá þingsins í dag. Það mál var afgreitt úr atvinnuveganefnd á haustdögum í miklum flýti og með ákveðnum yfirgangi. Til að mynda var því hafnað að fá ákveðna fulltrúa ráðuneytisins og ákveðna fulltrúa frá Fiskistofu á fund nefndarinnar og talað um að annar tími yrði nýttur síðar til að taka þá fundi. Síðan hefur verið ítrekað fundarfall í nefndinni og nægur tími til að verða við þessari beiðni okkar.
Þetta setur þingstörfin í uppnám, virðulegur forseti, og ég reikna með að forseti geri sér grein fyrir því. Þetta mun neyða okkur til að tala hér lengur í öðrum málum til að forða því að þetta ómögulega mál fari á dagskrá. Þetta er mjög umdeilt. Efasemdir eru um að forsendur málsins standist lög og stjórnarskrá. (Forseti hringir.) Þetta verður að vinna betur. Ég hvet virðulegan forseta til að stuðla að sátt og áframhaldandi góðri vinnu í þinginu, taka þetta mál af dagskrá og senda það til nefndarinnar til ítarlegrar og betri vinnu að beiðni okkar í minni hlutanum sem ekki var orðið við og (Forseti hringir.) átti að taka á dagskrá síðar.