157. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2026.

fundarstjórn forseta.

[10:33]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Jóni Gunnarssyni að það er undarlegt að sjá þetta mál á dagskrá í dag. Þetta er þingmannamál og ég leyfi mér að fullyrða að það er ekki samstaða um þetta mál innan ríkisstjórnarinnar. Ég er því mjög undrandi að forseti skuli ákveða að hafa þetta mál á dagskrá hér í dag. Ég vil jafnframt nefna að komið var á framfæri við forseta mótmælum við því að þetta mál færi á dagskrá. Því vil ég spyrja hæstv. forseta hvort það hafi orðið stefnubreyting í því að við séum að taka hér fyrir þingmannamál og hvort við í stjórnarandstöðunni eigum þá von á því að eitthvað af okkar málum muni fá brautargengi í pontu næstu vikur.