157. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2026.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

[10:36]
Horfa

Eiríkur S. Svavarsson (M):

Virðulegi forseti. Ég vil taka heils hugar undir það sem þeir þingmenn sem hér á undan hafa komið í þessu máli hafa sagt og geri það að tillögu minni að þetta mál verði tekið út af dagskrá. Þegar meðferð þessa máls fyrir nefndinni er skoðuð er bara einfaldlega ekki búið að vinna þetta mál, engan veginn, nægjanlega vel. Það eru margir gestir sem eiga eftir að koma fyrir nefndina og það á eftir að meðhöndla þetta mál miklu frekar og miklu meira. Við eigum ekki að vera að raska þeim ágæta friði sem hér hefur verið í starfsháttum á undanförnum vikum. Ég skora á forseta að koma þessu aftur fyrir nefndina og taka þetta út af dagskrá.