157. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2026.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

[10:38]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Ég kem hér upp og tek undir með félögum mínum sem tekið hafa til máls um fundarstjórn forseta. Það er mjög mikilvægt að hafa í huga að þegar kerfisbreyting á sér stað — þetta er kerfisbreyting, við komum henni á hér ekki fyrir svo löngu, fyrir tveimur árum — og kvaðir eru lagðar á atvinnuvegaráðherra tel ég mjög brýnt að málið sé skoðað aftur. Sérstaklega í ljósi þess að það er ekki hagur neins, hvort sem menn eru í stjórn eða stjórnarandstöðu, að leggja kvaðir á ráðherra til að fara á svig við fiskveiðiráðgjöf sem við höfum hingað til litið upp til. Þó að við höfum ýmsar skoðanir á því hvort ráðgjöfin megi vera svona eða hinsegin þá er það ekki það sem við viljum horfa til eða að (Forseti hringir.) leggja byrðar í hendur ráðherra hvað það varðar.