157. löggjafarþing — 61. fundur, 29. jan. 2026.
veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Forseti vill, í tilefni af þessari umræðu, taka það fram að ég hef hlýtt á þær ræður sem hér hafa verið haldnar. Í annan stað vil ég upplýsa þingheim um að eins og þingflokksformenn vita þá fól ég þeim á fundi okkar fyrr í vikunni að fara yfir þingmannamálin með tilliti til forgangsröðunar þingflokka, þannig að það er verið að vinna að því.