157. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2026.

viðbrögð stjórnvalda við verðbólgu.

[10:53]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Það er, held ég, ekkert plan. Planið var að segja: Við ætlum að ná niður verðbólguvæntingunum. Við tókum þessa umræðu við framlagningu fjárlaganna. Það er ekki að ná niður verðbólguvæntingum þegar ríkisstjórnin leggur fram fjárlagafrumvarp og hækkar alla krónutöluhækkun um það sem þeir reikna með að verðbólgan sé að hækka — og er reyndar ekki nóg því að hún er komin í 5,2%. Í löndunum í kringum okkur, á Norðurlöndunum sem við fylgjumst vel með, hafa menn gripið til ráða og sagt: Verðbólgan er þrálát. Það er erfiðara að ná henni niður heldur en við höfðum ætlað eftir Covid — það sama og við upplifum hér — og við ætlum að gera eitthvað annað. Hægri stjórnin í Svíþjóð ákvað að lækka virðisaukaskatt á matvæli. Danska ríkisstjórnin, með sósíaldemókratíska formanninn, Mette Frederiksen, sem er nú fyrirmynd hæstv. forsætisráðherra, Kristrúnar Frostadóttur, hefur mér sýnst, er að leggja til nákvæmlega það sama. Við í Framsókn lögðum til slíkt í þingsályktunartillögu í haust, og ég legg til að forseti setji það mál á dagskrá, um að lækka virðisaukaskatt á matvælum tímabundið til að koma til móts við þá sem þurfa að sitja undir dýrtíðinni og að vera jafnframt tæki til að ná niður verðbólgunni.