hækkun á kolefnisgjaldi.
Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir spurninguna. Ég kann því illa að vera sakaður um ósannsögli af því að ég kannast ekki við að það hafi verið, heldur var ég að fara yfir að það væru fleiri sjónarmið sem hægt væri að leggja til grundvallar. Það er alveg ljóst að álagning kolefnisgjalda hefur verið leið til þess að taka tillit til þeirra neikvæðu áhrifa sem losun kolefnis hefur. Það hefur verið ástæðan hingað til og verður það hér eftir. Það sem ég var einungis að benda á er að Ísland er í þeirri sérstöku stöðu að þessar breytingar hafa ekki bara þau áhrif að draga úr mengun og gera það að verkum að Ísland leggi sitt af mörkum í baráttunni við loftslagsbreytingar heldur gera þær okkur líka, vegna sérstakrar aðstöðu okkar, það kleift að draga úr innflutningi á jarðefnaeldsneyti, sem við framleiðum ekki sjálf og munum sennilega aldrei framleiða, sem auðvitað er gríðarlegt efnahagslegt mál fyrir íslensku þjóðina.