virkjunarkostir rammaáætlunar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Við ræðum hér rammaáætlunarpakka frá verkefnisstjórn rammaáætlunar. Þetta eru virkjunarkostir sem hafa dinglað svolítið á milli Alþingis og verkefnisstjórnarinnar. Á síðasta kjörtímabili var þessi pakki lagður þannig fyrir ríkisstjórnina að það var stefnt að því að setja í verndarflokk og fara þá í að friðlýsa einhverja hagkvæmustu virkjunarkosti Landsvirkjunar, bæði Kjalölduveitu og Héraðsvötn. Ég hefði haldið að hv. þingmaður, sem er mikill virkjunarsinni, fagnaði því kannski að það stendur ekki til.
Hvað Urriðafoss varðar þá er þetta sá virkjunarkostur sem er aftast í röðinni þegar kemur að virkjun Þjórsár. Það liggur fyrir að fyrst þarf að klára bæði Hvammsvirkjun og Holtavirkjun. Holtavirkjun og Skrokkölduvirkjun fara í nýtingu samkvæmt þeirri tillögu sem ég lagði fram og sem meiri hluti nefndarinnar hefur fallist á. Það liggur fyrir að það þarf að undirbúa þessa virkjunarkosti og ganga þarf rösklega til verka. Þá mun líka koma að verulegu leyti í ljós að hvaða marki mótvægisaðgerðir vegna villta laxastofnsins virka. Það koma fram umsagnir frá þinginu, m.a. frá Skeiða- og Gnúpverjahreppi og veiðifélagi Þjórsár, þar sem er kallað eftir ákveðinni varkárni, m.a. frá sveitarfélaginu sem hefur það svo á hendi að gefa út framkvæmdaleyfi.
Mér hefur ekki þótt endilega góður bragur að því að fara gegn vilja sveitarfélagsins sem hýsir viðkomandi virkjunarkost þegar farið er í að setja hvort sem það er í nýtingarflokk eða verndarflokk. Það er einmitt ein af ástæðum þess að ég hef viljað fara varlega í að setja í verndarflokk t.d. stóra og hagkvæma virkjunarkosti eins og í Héraðsvötnum og það sama gildir um Urriðafoss. Að fengnum þessum umsögnum, m.a. frá Skeiða- og Gnúpverjahreppi, og í ljósi þess að þetta er síðasti virkjunarkosturinn í röðinni og mikið verk óunnið þegar kemur að bæði Hvammsvirkjun (Forseti hringir.) og Holtavirkjun þá finnst mér ekkert óeðlileg niðurstaða að þessi kostur verði settur í biðflokk og að við bíðum aðeins eftir niðurstöðum mótvægisaðgerða. (Forseti hringir.) Annars hefði ég vonast eftir því, og geri það enn, að hv. þingmaður og stjórnarandstaðan standi með okkur í því að setja þessa kosti í nýtingarflokk og (Forseti hringir.) suma aðra af þeim kostum sem áður stóð til að setja í verndarflokk í biðflokk.