laun forseta Íslands og Stjórnarráð Íslands.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og tel að það sé mikilvægt einmitt að nefndin taki þetta til umræðu. Vissulega hefur borist umsögn þess efnis að fólk var að velta því fyrir sér hvort þessi verkaskipting í rauninni, tillaga sem kæmi frá forsætisráðherra, væri eðlileg með þessu móti. Ég tek auðvitað að fullu leyti undir með hv. þingmanni að það þarf að tryggja sjálfstæði forsetaembættisins. Vegna þessa var sérstaklega haft fyrir því að sækja heimildir í Þjóðskjalasafn um hvernig í rauninni skipan forsetaritara og tillögugerð forsetaritara hefur verið í gegnum tíðina. Í raun virðist hafa verið svo til allur gangur á þessu. Hérna er verið að fara millileið, milli þess að forsetinn ráði einn eða á hina höndina, gæti einhver sagt, að það sé í rauninni bara kjara- og mannauðssýslan hjá hinu opinbera sem segi til um hvernig eigi að ráða. Í nútímaumhverfi er það svo að við erum með auglýsingar, fólk fer í gegnum hæfnismatsferli en það liggur samt alveg fyrir í þessu samhengi að það er fullkomlega eðlilegt að forsetinn hafi sjálfur aðkomu að þessu ferli, enda er þetta starfsmaður sem starfar á forsetaskrifstofunni. Í þessu samhengi er talið eðlilegt að það sé í rauninni partur af þessu ferli nauðsynlegt samtal milli forsætisráðherra og forseta þegar kemur að þessari tillögugerð, þótt formlega komi tillagan frá forsætisráðherra. Ég hygg að undirliggjandi ástæða sé að oft í gegnum tíðina hefur þetta verið gert með þessum hætti. Tillagan kemur frá forsætisráðherra en auðvitað að viðhöfðu samráði við forsetann.
Ég ítreka það sem ég sagði áðan, það voru sótt gögn og mér finnst bara gott að þetta verði tekið til umræðu í nefndinni. Við viljum að það skapist ákveðin festa um forsetaritarann og það er sérstaklega tekið fram að í ljósi þess að það standi til, a.m.k. samkvæmt þessu frumvarpi, að forseti fái aðstoðarmann, þá skipti enn þá meira máli að hlutverk forsetaritara sé skýrt í lögum.