157. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2026.

laun forseta Íslands og Stjórnarráð Íslands.

314. mál
[11:45]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Hér kom hæstv. forsætisráðherra einmitt inn á það atriði sem varð til þess að ég taldi rétt að gera athugasemd. Jú, 10 milljónir væru ekki mikið en þetta væri bara eitt af mörgu sem þessi ríkisstjórn væri að gera til að spara. Vandinn er bara sá að þetta stenst ekki skoðun. Hér er ríkisstjórn sem er nýbúin að auka ríkisútgjöld milli ára, eftir stórkostlega útgjaldaaukningu árin þar á undan, um 143 milljarða með þeim afleiðingum sem við sjáum birtast, hækkun verðlags og mælingu verðbólgu í dag.

Hvað varðar hlutverk aðstoðarmanns forseta, sem ég mun gera betur grein fyrir í ræðu hér á eftir, þá get ég vel skilið þá nálgun sem lagt er upp með hér, að þessi aðstoðarmaður sé í samstarfi við forsætisráðherra. Ég lít ekki á það sem tilraun hæstv. forsætisráðherra til að seilast í einhver völd sem eiga að vera annars staðar. Ég tel þvert á móti æskilegt að það sé gott samstarf milli hæstv. forsætisráðherra og forseta Íslands. En engu að síður hlýtur maður að setja þetta í samhengi, annars vegar þennan 10 millj. kr. sparnað og svo þetta samráð við aðstoðarmanninn, í samhengi við það fordæmi — af því að hér er talað um fordæmi — sem þessi ríkisstjórn og reyndar sú síðasta líka hafa sýnt varðandi ráðningu aðstoðarfólks og umsvif ráðuneytanna. Fá ráðuneyti, líklega ekkert ráðuneyti, held ég megi segja, tvímælalaust ekkert ráðuneyti, hefur vaxið eins mikið og forsætisráðuneytið á undanförnum árum. Ég veit að það er ekki allt núverandi hæstv. forsætisráðherra að kenna, það fór á fullan skrið í tíð síðasta meiri hluta hér. En af því að þetta er kynnt sem fordæmismál, mál sem eigi að senda skýr skilaboð um sparnað inn í kerfið, má þá vænta þess (Forseti hringir.) að ríkisstjórnin í verkum sínum og sinni umgjörð þiggi þetta fordæmi?