laun forseta Íslands og Stjórnarráð Íslands.
Frú forseti. Ég tel rétt að segja nokkur orð um þetta mál í ljósi þess að það er kynnt hér sem fordæmisgefandi mál. Hæstv. forsætisráðherra gerir allmikið úr því að þótt greiðslurnar til handhafa forsetavalds séu kannski ekki stórar í heildarsamhenginu þá séu þær umtalsverðar fyrir þessa einstaklinga. Það kann að vera alveg rétt. Ég set ekki út á að það sé sparað gagnvart þessum einstaklingum. Það sem ég hef áhyggjur af er hvernig þessi ríkisstjórn, og reyndar aðrar ríkisstjórnir líka, hefur nálgast umræðu um rekstur ríkisins og sparnað. Það er reynt að blása upp pínulítil mál. Í þessu tilviki er svona notuð dálítið popúlísk aðferð með því að segja að þarna séu þrír einstaklingar sem séu nú aldeilis að græða á almenningi, að fá einhverjar milljónir. Ég set ekkert út á að það sé dregið úr því. Ég held að það sé bara þjóðráð að draga úr þeim kostnaði. En vandinn er sá að svona mál hafa verið notuð til að beina athyglinni frá stóru myndinni, því að þessi 10 millj. kr. sparnaður breytir augljóslega ekki, eins og hæstv. forsætisráðherra viðurkennir, heildarmyndinni hjá ríkinu. Engu að síður er þetta kynnt hérna sem fordæmisgefandi og ég sé ekki þetta fordæmi birtast annars staðar hjá þessari hæstv. ríkisstjórn.
Talað er um aðstoðarmenn í tengslum við þetta frumvarp. Í tíð fyrstu vinstri stjórnarinnar, fyrstu hreinu vinstri stjórnarinnar 2009–2013, þegar mikil áhersla var lögð á mikilvægi þess að spara í kjölfar bankahrunsins, sá þáverandi ríkisstjórn ákveðið tækifæri í ástandinu, tækifæri sem þyrfti að nýta til að treysta völd sín og styrkja stöðu vinstri flokkanna gagnvart samfélaginu. Það birtist m.a. í því að á þessum sparnaðartímum var ráðist í breytingar á lögum til að heimila mikla fjölgun aðstoðarmanna ráðherra. Skömmu fyrir bankahrunið höfðu verið áform um að þingmenn fengju aðstoðarmenn, rétt eins og nú stendur til að veita forseta Íslands aðstoðarmann, en það var talið óraunhæft eftir bankahrunið. Engu að síður ákvað þáverandi ríkisstjórn, undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur, að auka mjög heimildir ráðherra til að ráða sér aðstoðarmenn. Áður hafði það nú tíðkast að ráðherrar höfðu einn aðstoðarmann hver, en með breytingunni var mögulegur fjöldi aðstoðarmanna ráðherra færður upp í 23 samanlagt. Þegar við gerðum athugasemdir við þetta var því svarað til að þetta væri bara heimild. Hv. þingmenn þekkja þetta, hvernig stjórnvöld reyna stundum að drepa málum á dreif með því að tala um að eitthvað sé bara heimild, það þurfi ekkert endilega að gerast. Og það var nú aldeilis gefið til kynna að þessi heimild yrði líklega aldrei nýtt að fullu. En það leið þó ekki á löngu áður en þessi heimild var nýtt til fulls og komnir 23 aðstoðarmenn hjá ráðherrum ríkisstjórnarinnar.
Við reyndum svo að draga úr þessu þegar við tók ný ríkisstjórn, þótt það verði að segjast að það hafi ekki allir ráðherrar verið til í að láta einn aðstoðarmann nægja. Og svo var farið í þær brellur að reyna að skilgreina hina ýmsu starfsmenn í opinbera kerfinu sem aðstoðarmenn ráðherra til að halda því fram að þeir væru nú aldeilis margir hjá þáverandi ríkisstjórn en það var bara útúrsnúningur og vitleysa. En þá var alla vega leitast við að halda aftur af þessu.
Við tók ný ríkisstjórn 2017 og síðan þá tel ég að þessi heimild, sem aldrei átti að þurfa að fullnýta, hafi verið nýtt til fulls, en ekki bara það heldur hafa verið búin til ný hlutverk í ráðuneytunum, alls konar sérfræðihlutverk til að fjölga starfsmönnum, stækka umgjörðina um ríkisstjórnina. Við sjáum þessa þróun halda áfram til að mynda í forsætisráðuneytinu þar sem búin eru til hin ýmsu hlutverk og það ráðuneyti stækkar jafnt og þétt. Ég er ekki með nýjustu tölurnar yfir starfsmannafjölda en fyrir allmörgum árum var starfsmannafjöldi forsætisráðuneytisins búinn að tvöfaldast á fáeinum árum, tvöfaldast. Svo hélt áfram að bætast við.
Ástæðan fyrir því ég rek þessa sögu hér, nefni þetta, er að þetta mál er kynnt sem einhvers konar fordæmismál eða hvatning í sparnaði. En ég sé engin merki um að þessi hæstv. ríkisstjórn sé að fylgja eigin hvatningu hvað það varðar. Báknið stækkar. Jú, það hefur eitthvað dregið úr fjölda opinberra starfsmanna á landsbyggðinni. Þar er nú iðulega auðveldast að loka skrifstofum og fækka fólki. En báknið í heild, stjórnsýslan, hefur haldið áfram að stækka á Íslandi. Þess vegna gremst mér örlítið að það sé vakin athygli á svona litlu máli sem dæmi um að þessi ríkisstjórn sé að spara og leita leiða til þess. Það er ekki hægt að takast á við gegndarlausan hallarekstur ríkisins nema að líta á stóru myndina og taka stóru ákvarðanirnar sem þarf til þess að snúa við þessum gegndarlausa hallarekstri sem, svo ég segi það aftur eins og ég nefndi hér í andsvari við hæstv. forsætisráðherra, er núna farinn að hafa mjög raunveruleg og veruleg áhrif á heimili landsins. Það sem hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar höfðu varað við, spáð fyrir um og útskýrt hvernig myndi gerast er að raungerast núna strax á fyrsta mánuði nýja ársins með stóraukinni verðbólgu, meiri verðbólgu en hefur verið hér á landi frá því töluvert áður en þessi núverandi ríkisstjórn tók við. Hvað sem líður öllu tali um sleggju og megináherslur ríkisstjórnarinnar á að taka á verðbólgunni, ná niður vöxtum og verðbólgu, þá sjáum við að hið öfuga er að gerast. Og það er ekki hvað síst vegna stjórnleysis í útgjöldum ríkisins. Lái mér hver sem vill að mér gremjist aðeins að þetta mál með 10 millj. kr. sparnaðinn, m.a. með rafrænum undirritunum, sé svo notað sem sýnidæmi um að þessi ríkisstjórn sé að spara. Hún er ekki að spara. Hún er búin að slá öll met og þau voru mörg slegin í tíð síðasta meiri hluta hér á Alþingi. Hún er búin að slá öll met í ríkisútgjöldum og afleiðingarnar birtast nú í minna virði gjaldmiðilsins, með öðrum orðum hærri verðbólgu, sem hefur áhrif á útgjöld heimilanna og hefur sannarlega áhrif á skuldir þeirra.
Ég hvet því hæstv. forsætisráðherra til að sýna að ríkisstjórninni sé alvara og reiða sig ekki á smámál, eins og 10 millj. kr. sparnaðinn sem hér er kynntur, í trausti þess að athyglin fari þá á það og það sé einhvern veginn tikkað í það box að ríkisstjórnin sé að spara. Hún er ekki búin að vera að spara, hún er búin að auka ríkisútgjöld meira en nokkur önnur ríkisstjórn, þ.e. ríkisútgjöld hafa aldrei verið eins mikil og nú á verðlagi dagsins í dag. Ég er ekki að sjá að samfélagið, almenningur á Íslandi, hafi fengið mikið fyrir það. Eða er heilbrigðiskerfið betra? Er menntakerfið betra? Er löggæslan betri o.s.frv. en hún var fyrir einhverjum árum síðan?
Að lokum, frú forseti, undirstrika ég mikilvægi þess að ríkisstjórnin sýni að henni sé alvara þegar hún talar um að fara fram með góðu fordæmi og hætti a.m.k. að bæta í báknið í efstu lögum ríkisvaldsins og hefjist helst handa með alvörusparnaðaraðgerðum þar sem hæstv. forsætisráðherra getur raunverulega komið hér og státað sig af sparnaði sem skiptir máli og sagt með vissu: Sjáið þið hvað við lögðum í. Sjáið þið hvað við þorðum að gera. Nú skulu aðrir fylgja á eftir.
Þetta, því miður, frú forseti, er ekki slíkt mál.