laun forseta Íslands og Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Ég hef lengi fylgst af aðdáun með hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, sem mér hefur þótt viljugur til að hrista oft svolítið upp í kerfinu. Því til stuðnings var það nú t.d. þannig að þegar hv. þingmaður var forsætisráðherra þá kallaði hann mjög öflugt fólk til verka í sínu ráðuneyti, fjölda góðra aðstoðarmanna sem léku lykilhlutverk gagnvart stjórnsýslunni, gagnvart því sem hv. þingmaður kallar oft báknið þegar kom að stórum verkefnum eins og leiðréttingunni svokölluðu, eins og glímunni við kröfuhafa. Þar reiddi hv. þingmaður, sem þá var forsætisráðherra, sig að verulegu leyti á mjög öflugt lið aðstoðarmanna.
Ég er pínulítið hissa á því, ég hefði kannski viljað sjá stuðning frá hv. þingmanni við þær aðgerðir sem hér er verið að grípa til. Hvað hefur þessi ríkisstjórn gert síðan við tókum við? Jú, við höfum lagt fram fjármálaáætlun sem felur í sér miklu meiri hagræðingu, meira aðhald á útgjaldahlið, stærri aðhaldsaðgerðir á útgjaldahlið heldur en hafa verið boðaðar í langan tíma, 107 milljarðar á tímabili fjármálaáætlunar, sem er miklu meira en tíðkaðist hjá fyrri ríkisstjórn. Vissulega erum við að auka útgjöld til ákveðinna málaflokka á móti. Við erum að auka fjárfestingar í vegakerfinu. Við erum að ráðast í ákveðnar aðgerðir í velferðarmálum o.s.frv. En við verðum að fara einmitt mjög fast í að draga úr útgjöldum þegar kemur að yfirbyggingu, t.d. hjá hinu opinbera. Í mínu ráðuneyti fórum við strax í það að skila fjármunum, 600 milljónum. Þetta var ákveðið strax. Hv. þingmaður getur svo leikið sér að því að skoða þróun starfsmannafjölda í einstaka ráðuneytum, skoðað t.d. hvernig dregið hefur úr yfirbyggingu, m.a. í forsætisráðuneytinu.
En það sem mig langar að spyrja hv. þingmann að er: Kom það aldrei til álita þegar hv. þingmaður (Forseti hringir.) var forsætisráðherra og var að grípa til stórra aðgerða og var stundum einmitt með embættismannakerfið svolítið (Forseti hringir.) svona á móti sér — kom það aldrei til álita að fara í aðgerðir eins og hér er verið að mæla fyrir, að draga úr óþarfasporslum (Forseti hringir.) þegar kemur að æðstu yfirstjórn ríkisins? Þetta eru vissulega táknrænar fjárhæðir, (Forseti hringir.) þær eru ekki stórar í stóra samhenginu. En allt svona skiptir máli. Það skiptir máli að sýna að við byrjum á sjálfum okkur. Kom það ekkert til álita að draga úr (Forseti hringir.) þessum milljónasporslum á því tímabili?
(Forseti (BHar): Forseti minnir hæstv. ráðherra á að virða tímamörk.)