veiting ríkisborgararéttar.
Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um veitingu ríkisborgararéttar. Allsherjar- og menntamálanefnd bárust 290 umsóknir um ríkisborgararétt á haustþingi 157. löggjafarþings en samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um íslenskan ríkisborgararétt, nr. 100/1952, veitir Alþingi ríkisborgararétt með lögum. Nefndin leggur til að umsækjendum á 28 umsóknum verði veittur ríkisborgararéttur að þessu sinni auk átta barna umsækjenda. Allsherjar- og menntamálanefnd leggur því til að 36 einstaklingar öðlast ríkisborgararétt að þessu sinni.
Verði frumvarpið samþykkt óska ég þessum einstaklingum innilega til hamingju. Ég vil þakka hv. þingmönnum Grími Grímssyni og Jón Pétri Zimsen fyrir gott samstarf í undirnefnd allsherjar- og menntamálanefndar sem fór yfir umsóknir. Þá færi ég allsherjar- og menntamálanefnd einnig þakkir.