framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026-2029.
Með tillögunni er lagt til að Alþingi samþykki framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026–2029. Áætlunin er lögð fram á grundvelli 26. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Tillagan skiptist í sex kafla og 40 aðgerðir sem áætlað er að framkvæma á gildistíma áætlunarinnar og byggjast m.a. á umræðum á jafnréttisþingi og öðru samráði. Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar árétta sérstaklega: Meiri hlutinn telur mikilvægt að aðgerðir framkvæmdaáætlunarinnar hafi verið metnar fjárhagslega og að mat á kostnaði við framkvæmd einstakra tillagna sé tilgreint í tillögunni. Undanfarin ár hefur orðið bakslag í réttindum kvenna og hinsegin fólks í heiminum sem sýnir fram á að stöðugt þarf að berjast fyrir, standa vörð um og stuðla markvisst að jafnrétti kynjanna og mannréttindum. Framkvæmdaráætluninni er ætlað að skilgreina stefnu stjórnvalda á hverjum tíma og lýsa verkefnum sem varða stöðu kynjanna. Meiri hlutinn telur að fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum sé yfirgripsmikil og muni stuðla að auknu jafnrétti á mörgum mikilvægum sviðum samfélagsins. Meiri hlutinn lítur svo á að allar aðgerðirnar séu til þess fallnar að vinna að því markmiði að tryggja jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
Í umsögnum um málið kom fram að framkvæmdaáætlunin þurfi að taka mið af sjónarmiðum um fjölbreytileika þar sem horfa þurfi til hópa sem eiga í hættu á að verða fyrir margþættri mismunun. Í þeim hópum eru m.a. innflytjendakonur, láglaunakonur, jaðarsettar konur, fatlaðar konur og aðrar konur sem standa höllum fæti, svo sem heimilislausar konur og konur með vímuefnavanda. Í umsögnum var einnig bent á að samkvæmt rannsóknum séu ákveðnir hópar kvenna sem búi við kerfislæga mismunun þar sem konur með fjölþættan vanda fá oft ekki viðeigandi þjónustu vegna skorts á samvinnu og samþættingu þjónustu, svo sem milli heilbrigðis-, félags- og réttarkerfis. Meiri hlutinn tekur undir og áréttar nauðsyn þess að hugað verði að samræmingu aðgerða og milli kerfa sem falla undir mismunandi ráðuneyti og stofnanir svo að það megi tryggja að unnið verði heildstætt að sameiginlegum markmiðum. Meiri hlutinn telur að aðgerðir framkvæmdaáætlunarinnar séu mikilvægar og muni stuðla að auknu jafnrétti en einnig er mikilvægt að tryggja samræmi við aðrar áætlanir stjórnvalda. -
Þá fjallaði nefndin um jafnrétti á vinnumarkaði, kynbundinn launamun og virði kvennastarfa. Samkvæmt rannsóknum er meginástæða launamunar á Íslandi kynskiptur vinnumarkaður og vanmat á störfum kvenna. Með aðgerð nr. 17 í framkvæmdaáætluninni er lagt til að unnið verði að þróun og eftirfylgni virðismatskerfis og að stýrihópur sem starfi í þágu launajafnréttis stýri vinnu um þróun og innleiðingu kerfisins. Einnig er lagt til í aðgerð nr. 18 að jafnlaunakerfið verði endurskoðað með tilliti til reynslu af kerfinu og ábendinga sem fram hafa komið um framkvæmd þess. Í umsögnum er bent á að launamunur kynjanna sé viðvarandi vandamál þrátt fyrir að hann hafi dregist saman. Meiri hlutinn undirstrikar nauðsyn þess að áfram verði unnið að því markmiði að tryggja að konur og karlar fái greidd jöfn laun og njóti sömu kjara fyrir sömu eða jafn verðmæt störf.
Nefndin fjallaði að auki um kynbundið og kynferðislegt ofbeldi. Stjórnvöld hafa undanfarin ár lagt áherslu á að vinna markvisst að aðgerðum gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi og áreitni, umbótum í meðferð kynferðisbrota í réttarvörslukerfinu og eflingu forvarna og fræðslu gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni. Meiri hlutinn tekur undir mikilvægi allra aðgerða gegn kynbundnu ofbeldi.
Fjallað var um aðgerð nr. 21 í framkvæmdaáætluninni um að unnin verði landsáætlun, sem taki mið af ákvæðum samnings Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi, Istanbúlsamninginn, sem Ísland hefur fullgilt. Samkvæmt aðgerðinni verður að tryggja innleiðingu á ákvæðum samningsins og auka skilning og vitund almennings um mismunandi birtingarmyndir ofbeldis sem falla undir gildissvið hans. Drög að landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi gegn konum hafa verið kynnt í samráðsgátt stjórnvalda þar sem vikið er að því hvernig ákvæðum Istanbúlsamningsins verði komið í framkvæmd.
Nefndin fjallaði einnig um aðgerð nr. 23 um áfallamiðaða nálgun í réttarvörslukerfinu og þarfir kvenna í fangelsum. Í umsögn embættis ríkislögreglustjóra er tekið undir mikilvægi þessarar aðgerðar. Rannsókn meðal íslenskra fanga árið 2021 sýndi að tíðni áfalla í æsku, sérstaklega kynferðisbrota, vanrækslu og andlegs ofbeldis, væri há meðal þeirra. Meiri hluti nefndarinnar tekur heils hugar undir sjónarmið embættisins um að leggja verði áherslu á að lögregla, starfsfólks fangelsa og aðrir sem starfa í réttarkerfinu fái menntun og þjálfun í áfallamiðaðri nálgun til að bæta þjónustu við einstaklinga sem hafa orðið fyrir áföllum.
Einnig var fjallað um aðgerð nr. 25 í framkvæmdaáætluninni um eflingu fræðslu um einkenni og birtingarmyndir heiðursofbeldis og neikvæðs félagslegs taumhalds. Í skýrslu eftirlitsnefndar með Istanbúlsamningnum frá 2022 er tilmælum beint til Íslands um að efla þekkingu starfsfólks félagsþjónustu, lögreglu, skóla- og frístundasviðs, heilbrigðiskerfis, þeirra sem sinna þjónustuúrræðum fyrir þolendur ofbeldis og fleiri viðeigandi aðila. Meiri hlutinn tekur undir mikilvægi slíkra aðgerða.
Loks vill meiri hlutinn geta þess að hann telur mikilvægt að unnið verði að því að útbúa mælaborð með það að markmiði að safna saman á einn stað kyngreinda tölfræði og verða þær tölur uppfærðar reglulega. Söfnun gagna og þróun mælikvarða er gagnleg til að meta framgang jafnréttismála á Íslandi og til að mæla framfarir í jafnréttismálum. Embætti ríkislögreglustjóra tekur einnig undir mikilvægi slíkrar aðgerðar þar sem ekki eru til skilgreindir samræmdir mælikvarðar um hvernig mæla skuli árangur í aðgerðum, t.d. hvað varðar afdrif mála í réttarkerfinu eða þjónustu vegna kynbundins og kynferðislegs ofbeldis.
Loks má geta þess að nefndin fjallaði um jafnréttisnefnd karla. Meiri hlutinn telur mikilvægt að umræða um jafnréttismál nái til allra hópa og telur stöðu karla og drengja mikilvægan hluta af því. Í því samhengi fagnar meiri hlutinn aðgerð nr. 10 þar sem lagt er til að skipuð verði karlanefnd sem hafi það hlutverk að vinna skýrslu með yfirsýn yfir samfélagslega stöðu karla og drengja og þær áskoranir sem karlar og drengir standa frammi fyrir í tengslum við jafnréttismál. Líkt og fram kemur í greinargerð með tillögunni skal nefndin leggja fram tillögur um hvernig stefnumótun á sviði jafnréttismála geti betur tekið mið af stöðu karla og drengja og um það hvernig frekar sé hægt að virkja karla til þátttöku á sviði jafnréttismála. Einnig kemur fram í greinargerð að karlar og drengir hafi mikilvægu hlutverki að gegna í baráttunni gegn hvers kyns ofbeldi gegn konum og stúlkum, þar á meðal sem aðstandendur, vitni eða bandamenn. Í umsögn frá embætti ríkislögreglustjóra kemur fram að embættið styðji heils hugar þessa aðgerð og telji mikilvægt að unnið verði markvisst með körlum að forvörnum gegn kynbundnu ofbeldi. Reynslan sýnir að til að ná árangri í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi sé nauðsynlegt að virkja karla sem bandamenn. Meiri hlutinn tekur undir það og vísar einnig til þess sem fram kom við umfjöllun um málið um að samfélagið allt njóti ávinnings af jafnrétti.
Meiri hlutinn leggur til breytingar á þingsályktunartillögunni. Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar nýja aðgerð við framkvæmdaráætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026-2029. Á undanförnum áratugum hafa breytingar á lögum um fæðingar- og foreldraorlof haft veruleg áhrif á stöðu kynjanna á vinnumarkaði og fjölskyldulíf. Þrátt fyrir aukinn stuðning við jafna ábyrgð foreldra benda rannsóknir til þess að áhrif meðgöngu og fæðingarorlofs á atvinnuþátttöku og starfsþróun kynjanna séu enn umtalsverð. Því leggur meiri hlutinn til að við framkvæmdaráætlunina bætist ein ný aðgerð með það að markmiði að varpa ljósi á hvernig taka veikindaréttar á síðari hluta meðgöngu, nýting fæðingarorlofs og endurkoma á vinnumarkaði hafa þróast síðustu tvo áratugi. Með greiningunni verður leitast við að skilja betur hvernig þessir þættir tengjast atvinnumöguleikum og launamun kynjanna, starfsþróun og efnahagslegri stöðu fjölskyldna. Lagt er til að verkefnið verði á ábyrgð félags- og húsnæðismálaráðuneytis en unnið í samstarfi við dómsmálaráðuneyti sem og Hagstofu Íslands og Háskóla Íslands.
Þá eru lagðar til breytingar sem eru tæknilegs eðlis og snúa að lagfæringu á orðalagi sem þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar. Vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meiri hlutans.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti allsherjar- og menntamálanefnda til að tillagan verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.
Undir álit meiri hlutans rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn María Rut Kristinsdóttir, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Pétur Björgvin Sveinsson.
Frú forseti. Ég hef lokið máli mínu.