157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[19:32]
Horfa

Snorri Másson (M):

Frú forseti. Já, það er stemning að ræða tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum, sem við ræddum nú eitthvað í vor og síðan aftur núna, og hún virðist vera á leiðinni í gegn, mjakast áfram með einhverjum breytingum. Það er að mörgu leyti fyndið að Viðreisn taki upp óbreytta stefnu Vinstri grænna í þessum málum, eins og hæstv. dómsmálaráðherra staðfesti hérna á sínum tíma, að þetta væri meira og minna óbreytt, þegar Vinstri grænir eru náttúrlega í vissum skilningi áhugaverð stjórnmálahreyfing sem náði stjórn á ríkisvaldinu þrátt fyrir að vera stýrt af tiltölulega áköfum aktífistahópi atvinnufemínista að hluta til, sem hefur náttúrlega hag af því að hér sé allt í volli í jafnréttismálum. Þetta er ákveðið svona kerfi og bákn sem var komið fyrir innan stjórnvalda og náði sannarlega stjórn á ríkisvaldinu hérna lengi og virðist eima eftir af því út frá því að menn taka svona tillögur upp óbreyttar og margt sem hefur verið kostulegt að fylgjast með umræðu um. Það þarf ekki annað en að lesa í gegnum þessa þætti hérna, allt frá óleysanlegum verkefnum sem hérna er lagt upp með um alls konar jafnrétti í íþróttaumfjöllun í fjölmiðlum, jafnrétti í fjölmiðlaumfjöllun. Þetta eru áratugagömul umræðuefni sem í raun og veru gengur engan veginn að leysa nema með einhvers konar grimmilegum forsjárhyggjuinngripum en fólk heldur einhvern veginn áfram að tala um, eins og það þurfi að stefna að því að leysa þau einhvern veginn með því að dæla milljónum í þau í þessu verðbólguskoti.

Svo bætist ýmislegt við. Jafnrétti og gervigreind. Það þarf einhvern veginn að láta gervigreindina taka undir kennisetningarnar í femínismanum, sem er náttúrlega líka kostulegur að mörgu leyti núna þessa dagana út frá því að við sjáum t.d. Kvenréttindafélagið skamma allsherjarnefndina fyrir að ekki sé sagt „kvenna og kvára“ í hvert einasta skipti sem konur eru nefndar. Þetta er eitthvað sem þessi hugmyndafræðilega yfirstétt hefur komið sér upp, að við þurfum alltaf segja „kvenna og kvára“ þótt meiri hluta almennings finnist þetta meira og minna bara einhvers konar brandari að segja „allar konur og kvár“. En það er svona sovéskt yfirbragð yfir þessu. Það kemur hérna inn umsögn um þetta frá Kvenréttindafélaginu. Þetta er náttúrlega fólk sem í raun og veru lítur ekki á kyn sem kategóríu heldur kyn sem ákvörðun, þannig að það er líka kostulegt í þessu, hvort það er karl eða kona eða kvár og bara ákveða það hverju sinni.

Ég geri ekki lítið úr því að hérna eru líka aðgerðir þar sem verið er að tala um kynbundið ofbeldi og annað eins og fullt tilefni til að stjórnvöld leggi sitt af mörkum þar. En það eru hinir þættirnir sem eru áhugaverðir í þessu. Við töluðum hérna síðast um jafnréttisfræðsluna sem á að koma á innan allra skólastiga, þessari jafnréttisfræðslu svokölluðu. Hún gengur líka út á að reyna að gera stráka og stelpur eins. Það er einhvern veginn markmiðið að gera alla eins, að strákar geti ekki tengst karlmennskunni eða konur kvenleikanum. Það er andstyggð á þessum greinarmuni á kynjunum sem er ráðandi í hugmyndafræðinni. Það er ýmsum aðferðum beitt til þess. Strákunum er innrætt að það sé eitthvað raunverulega að karlmennsku, rétt eins og þessir kvenlegu þættir, mögulega sögulegu kvenlegu þættir, eru sömuleiðis talaðir niður til þess að fá alla til að vera eins. Það er hugmyndin. Og þá er alltaf horft fram hjá því og í raun og veru neitað að kannast við að það sé munur á kynjunum. En það er auðvitað grundvallarmunur á kynjunum. Það er ástæða fyrir því að kynin eru til. Þegar maður gerði athugasemd við að það ætti að innleiða þetta á öll skólastig, þessar pælingar allar sem eru ekkert annað en bara nýstárleg hugmyndafræði í mannkynssögunni, að það sé enginn munur á kynjunum, gerði maður kynjafræðingana vitlausa. Þeir eru náttúrlega líka í þessum bransa að segja að það sé alveg eins líklegt að börn fæðist í röngum líkama og að þau þurfi þess vegna að leiðrétta það. Það er líka hluti af því sem þeir eru að verja. Þeir vilja geta sagt það óáreitt við börnin og ungmennin o.s.frv., þannig að það var forvitnileg umræða líka.

Það er að mörgu leyti eins og við búum á galdraöld þegar við hugsum út í það hvert þessi umræða er komin, þ.e. umræðan um jafnréttismálin, á tímum þar sem konur gegna náttúrlega beinlínis eiginlega öllum æðstu embættum þjóðarinnar og njóta fulls lagalegs jafnréttis á öllum mögulegum sviðum. Það er enginn sem gefur í skyn að því þurfi að breyta en það er samt þessi bransi og þessi iðnaður kominn upp í kringum þetta sem þarf að halda því fram að það sé komið bakslag, eins og hv. þm. Víðir Reynisson fullyrti — bakslag. Það hefur enginn bent á í hverju þetta bakslag í jafnrétti kynjanna felst. Það er svona eitthvað sem menn verða að segja til þess að næra þetta skrímsli. Það er bara staðan.

Svo er náttúrlega besti brandarinn að láta eins og femínismi gagnist körlum. Það er líka orðræðusnilld í því að halda þessu fram. Það er komið fyrir villuljósum í áætlunum eins og að skipuð verði karlanefnd sem hafi það hlutverk að vinna skýrslu með yfirsýn yfir samfélagslega stöðu karla og drengja, áskoranir sem karlar og drengir standa frammi fyrir í tengslum við jafnréttismál — áskoranir sem þeir standa frammi fyrir í tengslum við jafnréttismál. Það er náttúrlega að tala allan liðlangan daginn í jafnréttismálum um að það sé eitthvað að þessum körlum. Það er áskorunin þeirra. Það er verið að tala niður til þeirra og þeir bara finna það og skilja það. Þeir eru ekki vitlausir. Það er áskorunin. Það er svona: Já, finnum út hverjar áskoranirnar eru. Það er vitað. Við vitum að það er auðvitað umræðan að mörgu leyti í eðli sínu sem er vandamál fyrir karla sem vilja bara fá að vera þeir, eltast við sín markmið, hlæja, djóka, lifa sínu lífi án þess að vera alltaf með hugmyndafræðilega yfirboðara sem segja þeim hvað þeir mega segja, hvað þeir mega hugsa, hvernig þeir mega hegða sér út frá hugmyndafræðilegum forsendum.

Hvaða áskoranir eru það sem karlar standa frammi fyrir? Ég las magnaða grein á dögunum í tímaritinu Compact sem heitir, með leyfi forseta: „The lost generation“, þ.e. týnda kynslóðin, eftir mann að nafni Jacob Savage, þar sem hann talar um hvernig þessum málum var háttað í Bandaríkjunum á síðasta áratug, þessi fjölbreytileikastefna öll. DEI, heitir þetta á ensku, „diversity, equity, and inclusion“, þ.e. hugmyndin um að það eigi ekki að ráða fólk á forsendum þess hversu hæft það er til hlutverks síns heldur á forsendum ytri einkenna. Ef þú horfir á þetta út frá ráðningarstefnu, hvort þetta séu karlar eða konur eða hvort þau séu samkynhneigð eða trans eða útlendingar — að það eigi að horfa á þá þætti frekar en að horfa á hæfni fólks.

Þessi ráðningarstefna hélt öllu í heljargreipum í Bandaríkjunum, ef svo má segja, alla vega samkvæmt þessari grein. Við förum aldrei varhluta af slíkri þróun hér á Íslandi heldur smitast hún sannarlega hingað. Við höfum ekki sambærilega samantekt um þessa hugsun í ráðningum, þ.e. bara útdeilingu gæða, ef þú hugsar þetta þannig, í að ráða mann og annan. Þarna er verið að tala um handritshöfundateymi, fjölmiðla, þarna er verið að tala um fræðastörf, þ.e. háskólana. Þarna er verið að tala um þessar greinar, það er það sem höfundur þessarar greinar þekkir og hann lýsir því með skýrri tölfræði hvernig það verður alger umpólun, kannski eftir 2012 eða 2013 þegar þessi nýja hugsun um, já, hvað? Að í raun og veru megi ekki ráða unga hvíta karlmenn. Það er hugsunin sem grefur um sig. Það er DEI, eins og það er kallað, fjölbreytileikastefnan, ef svo má segja, eða ef við þýðum það yfir á íslensku: Inngildingarhugsun.

Hvað er þetta? Þetta snýst um að ráða ekki unga hvíta karla, eins og hann lýsir í þessari grein. Ef þú horfir á hlutfall nýráðninga þá hrynja nýráðningar alveg skýrt í prósentum, í háskólum, í fjölmiðlum, í menningargreinum, á ungum hvítum mönnum. Og það sem er áhugavert er að miðaldra karlarnir verða „woke“, með leyfi forseta, og taka þátt í þessari aðför að ungu körlunum og leyfa þessu að gerast. Þeir eru að einhverju leyti eins og maður sem er búinn að taka stiga og fara upp á bílskúrinn og svo fleygir hann stiganum niður á eftir sér þannig að hinir komast ekki neitt, þannig að miðaldra karlarnir verða meðvirkir með þessari hugsun og taka þátt í að vega svona að rétti þessara ungu manna.

Það sem mér finnst áhugavert að hugsa um í þessu — ég gæti svo farið í sérstök gögn en þetta eru bara alveg mjög skýrar prósentur um nýráðningar, t.d. hjá Condé Nast-fjölmiðlasamsteypunni sem gefur út New Yorker. Nýráðningar fara þarna á örfáum árum í 25% karla, þar sem menn setja eiginlega ráðningarbann á unga hvíta karla af því að hinir mælikvarðarnir mæla gegn því. Ef þú segir: Þetta verður að vera fólk af erlendum uppruna, þetta verða að vera konur, samkynhneigðir, trans, eitthvað svona, þá náttúrlega þýðir það það alltaf. Þá gengur þetta út á það. Þess vegna fannst mér svo — af því að við höfum nú tekið þessa fjölbreytileikaumræðu hérna inn í þingið: Fjölbreytileikaumræðan, fjölbreytileikinn, fögnum fjölbreytileikanum. Maður hefur lengi reynt að grafast fyrir og spurt hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans, sem eru nú margir, með fullri virðingu, svolítið „woke“ stundum: Til hvers er vísað með fjölbreytileika? Ég hef lengi leitað svara, skýrra svara, til að ná utan um þetta. Ég man eftir því að hérna nýlega lenti ég í smá útistöðum við álitsgjafa Ríkisútvarpsins, ónefndan, sem endaði á að skrifa — og nú vísa ég í að þetta var Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Hún skrifar, með leyfi forseta: Unga fólkið á skilið betri fyrirmyndir ef við keflinu taka dæmigerð hvít, heteronormatíf, karlkyns fórnarlömb eins og Snorri. Og nú er ég ekkert að fetta fingur út í Þóru Kristínu, sem er bara ágæt vinkona mín, en það er áhugavert að það gerir enginn athugasemd við þessa framsetningu. Það finnst engum athugavert að menn vaði í — og ég er heldur ekki viðkvæmur fyrir því, mér finnst hún lýsa tíðaranda: Hvítur gagnkynhneigður karl. Þetta er bara persona non grata, með leyfi forseta, þannig að maður fari í latínu. Þú mátt bara segja og hreyta í þetta fyrirbæri hverju sem þú vilt.

Þar komum við að kjarna fjölbreytileikans. Hvað þýðir fjölbreytileikinn? Fjölbreytileiki þýðir allt nema hvítur, gagnkynhneigður, ófatlaður karlmaður. Þegar við fögnum fjölbreytileikanum meinum við að við fögnum öllu nema hvítum karlmanni. Menn eru ekki vitlausir, þeir skilja hvað þessi orð þýða, þeir bara finna það utan á sér. Og svo segir fólk: Ónei, af hverju eru karlmenn og ungir karlmenn að hallast að íhaldssamari viðhorfum til kynjahlutverka og annars eins? Það er af því að þeir eru bara að bregðast við samfélagi, yfirstétt, hugmyndafræðilegri yfirstétt, menntakerfi, stjórnmálastétt, fjölmiðlum sem hata þá og sýna þeim það, segja þeim það með kóðum. Þetta er dulkóðað en þetta skilst af því að fólk er ekki vitlaust. Þetta er það sem sést svo vel í þessari grein sem ég vísaði til.

Ég get auðvitað fjallað um þetta í íslensku samhengi. Ég heyri skýrt utan af mér að á Íslandi séu t.d. karlar, ungir menn sem ætli að gera eitthvað í stjórnsýslunni og þeir eru hvattir til þess að næla sér í tilgangslausa meistaragráðu, af því að þessar meistaragráður, þið vitið hvernig þær eru; misgáfulegar líklega, stjórnun, MBA, allar þessar fjaðrir sem menn reyna að skreyta sig með til að fylla upp í ferilskrána. Þeir eru hvattir til að næla sér í tilgangslausa meistaragráðu vegna þess að annars eigi þeir ekki séns. Það getur enginn réttlætt það að ráða einhvern venjulegan karl nema þú getir alla vega sagt: Heyrðu, hann er með alla þessa menntun, við verðum að gera þetta út af því. Þú mátt ekki hugsa: Mér líst bara vel á hann. Það eru bara ekki næg rök. Þú þarft að færa sérstök rök fyrir því að ráða karl í þessu umhverfi.

Þetta sem ég er að lýsa úr þessari grein frá Bandaríkjunum er ekki einskorðað við Bandaríkin heldur hefur það sannarlega smitast hingað. Maður heyrir að í fjölmiðlabransanum, þar sem ég vann áður fyrr, hafi karlar einmitt — og ég ætla ekki að gerast dómari um það hvort þeir hafi verið verðugir þess að fá vinnu en maður heyrir þetta samt. Kannski er þetta biturð. Kannski er þetta óverðskulduð gremja. Kannski eru menn bitrir yfir örlögum sínum og leita sökudólga. Engu að síður grunar mig að það leynist sannleikskorn í því þegar menn lýsa því fyrir manni að verið sé að bítast um stöður í fjölmiðlum, sem ég hef heyrt dæmi af, mjög hæfir ungir menn sem lenda ítrekað í því að konur eru teknar fram fyrir og ekki síður t.d. konur af erlendum uppruna. Það er þá bara nákvæmlega þetta sem við erum að lýsa; kerfisbundin áhersla á að koma ungum mönnum frá. Þess vegna eru miðaldra karlarnir líka hættulegir í þessu vegna þess að þeir verða meðvirkir, þeir eru búnir að komast til áhrifa og segja: Ja, hver er skaðinn af því? Eigum við ekki að ráða þessa flottu ungu konu? Er það ekki flottara? Erum við þá ekki svolítið svona rétt hugsandi? Þetta er mynstur sem ég held að sé sannarlega við lýði. Ég gæti tekið sérstök dæmi um Háskólann í Reykjavík. Háskólinn í Reykjavík var einhvern tímann með átak: Stelpur og stálp eiga að koma á sérstaka tæknidaga í Háskólanum í Reykjavík. Og strákarnir eru bara heima. Þú veist: Tæknigreinar, stelpur, ýtum þeim að því. Og strákarnir: Helst ekki fara í tæknigreinar, var niðurstaðan í því.

Jafnréttisáætlun. Það er margt annað í þessari hugsun sem maður gerir athugasemd við og sömuleiðis bara í þessum meginstraumsfemínisma sem kannski sprettur fram í meginatriðum eins og í tengslum við alla þessa umræðu um hugræna byrði kynjanna og annað eins, ólaunaða umönnunarbyrði, eins og það er kallað að sjá um börn. Þetta er kerfisvæðing fjölskyldulífsins og jaðarsetning þess í því hvað eigi að skipta máli í umræðunni, þ.e. það er einhvern veginn fyrir neðan fólk að sjá um börn. Það er eitthvað óæskilegt. Það er ekki jafn eftirsóknarvert og að vera á vinnumarkaði og annað eins. Þetta er mjög barnfjandsamleg umræða sem grefur um sig, ef við segjum að hún byrji með einhverri bylgju femínismans, ég veit ekki númer hvað, á sjöunda áratug síðustu aldar og þá líklega svolítið á jaðrinum en verður síðan algjörlega meginstraumur. Þetta gerist auðvitað í samhengi við samfélagsbreytingar þegar konur fara í stríðum straumum út á vinnumarkaðinn, þannig að þetta gerist í einhverju samblandi af réttlætingu og útskýringu á nýjum veruleika. Þá myndast rosaleg slagsíða gegn barneignum. Einmitt þessi umræða, ef maður hugsar um Svövu Jakobsdóttur, einhverjar svona útungunarvélar sem fjarlægjast einhvern veginn sjálfar sig í tengslum við börnin en ekki þegar þær eru að gera eitthvað annað.

Það er eitthvað þess háttar sem maður rekur alla þessa áratugi fram í tímann þangað til við erum komin hingað. Þá erum við með kvenréttindafélag sem er með mjög þrönga sýn á það hvaða kvenréttindi eru, þ.e. það er ekki frjálst val kvenna á því hvernig þær haga lífi sínu eða hvort þær sjái um börnin sín í sex mánuði eða níu mánuði, 12 mánuði eða 15 mánuði eftir að þau fæðast, heldur er það Kvenréttindafélagið sem er búið að komast að niðurstöðu um að það sem er í hag konunnar út frá réttindum hennar hljóti að vera það að fara strax á vinnumarkað. Þess vegna þarf að skylda karlmenn til að taka jafn langt fæðingarorlof með pínulítið smábarn, sem er alger fásinna í hugum mjög margra þegar börnin eru svona pínulítil. Það bara er það. Konan er bara eðlisólík karlinum gagnvart barninu á þessum aldri. En kerfið, Vinstri grænir upphaflega, og arfurinn smitast inn í Viðreisn, smitast inn í Samfylkingu, hann er auðvitað ekkert eitthvað að smitast þaðan, þetta eru auðvitað þræðir sem eru alls staðar, en maður sér að þessi stæka forræðishyggja um þetta atriði lifir enn. Það kemur ekki til greina að breyta fæðingarorlofinu vegna þess að við erum búin að ákveða að það sé slæmt fyrir rétt konunnar. Það er svo ævintýralega mikið af konum sem telja það engan veginn sinn hag gagnvart sínum réttindum að ríkisvaldið sé að hlutast til um þetta, þennan rétt sem menn eru búnir að vinna sér inn fyrir með því að borga skatta; orlofið. Þeir eru sviptir honum vegna þess að forræðishyggjan er þannig að þau segja: Nei, þetta er ekki í hag konunnar. Þetta er fæðingarorlofssturlunin og umræðan, þessi hatramma umræða gegn umönnun barna og því að sjá um heimilið.

Þriðja vaktin, það að vera að hugsa um það hvað einhver ættingi fær í gjöf eða hvar fjarstýringin er eða hvort það þurfi að kaupa hundamat eða eitthvað annað slíkt, að sú hugsun lendi á konunni, sem er vel að merkja, ef þú spyrð konur — þetta kemur bara gífurlega náttúrlega oft hjá konum að hugsa um þetta á meðan karlinn er bara að hugsa um eitthvað allt annað. Það er bara oft þannig. En þá kemur kerfið og meginstraumsfemínisminn og segir: Nei, við ætlum núna að stíga inn í heimili þitt, framkvæma einhvers konar eigindlega rannsókn á hugrænni byrði, eða hvað þetta er nú kallað, þriðja vaktin, og reyna að breyta því hvernig þið rekið ykkar heimili. Þetta er bara eitthvert náttúrulegt ástand sem myndast og það þarf ekki að vera neitt að því. Það þarf ekki að próblematísera hvern einasta þátt tilveru okkar út frá kynjavinklinum, eins og er alltaf hugsunin með svona bull. Það er það sem við erum svolítið að glíma við hérna.

Ég nefni líka að þessi andstaða við barneignir eða foreldrahlutverkið, og þessi slagsíða gegn því og neikvæða umræðan, er ekki án afleiðinga til lengri tíma. Þetta er auðvitað heilaþvottur sem hefur rúllað hérna áratugum saman. Fæðingartíðnin hrynur. Það er ekki gott að eignast börn of snemma. Það verður að gera þetta, það verður að gera hitt, það verður að gera þetta, það verður að gera hitt. Allt skipti meira máli en barneignir. Í skólakerfinu gengur öll kynfræðsla eða önnur fræðsla út á það hvernig þið eignist ekki börn, aldrei fræðsla um bara frjósemi, að það geti verið erfitt að eignast börn, að það sé örugglega æskilegt að drífa sig af því að frjósemin hrynur eftir því sem maður eldist. Engin umræða um þetta. Alltaf bara: Hvernig er hægt að forðast barneignir eins og mögulegt er? Vegna þess að þær eru á einhvern hátt í þessari hugsun öðrum þræði einfaldlega bara gegn rétti kvenna, þær vega að rétti kvenna samkvæmt þessari hugsun, sem er fáránleg hugsun. Þannig að það eru margar pælingar í tengslum við framkvæmdaáætlanir í kynjajafnréttismálum.

Ég tek það nú fram að það er örugglega margt hérna og sannarlega er margt hérna sem er bara góðra gjalda vert. En það eru svona þræðir í þessari hugsun sem eru skaðlegir að mínu mati. Og svo pólitískt séð er áhugavert að þetta sé enn þá uppi á borðum hjá frjálslyndum, svona frelsi einstaklingsins-flokkum eins og Viðreisn. Þar er forræðishyggjan við völd, við lýði. Þeir geta ekki einu sinni afnumið jafnlaunavottunina, kerfi sem mun kosta atvinnulífið fleiri milljarða, eða farið til einhvers konar vottunarskrifstofa og ekki borið neinn mælanlegan árangur inn í þennan launamun sem er 3,6% eða eitthvað, ef einhver finnur það út í einhverri mælingu til þess að halda dæminu gangandi.

Að því sögðu hef ég lokið máli mínu.