sýslumaður.
Virðulegur forseti. Verið er að leggja til að sameina embætti sýslumanna þannig að eftir standi eitt embætti, embætti sýslumannsins á Íslandi. Það er gott og vel en það verður að passa hvernig að þessu er staðið. Þessi sameining má ekki vera pólitísk keila fyrir ráðherra til að tikka í box. Sýslumenn fara með gríðarlega mikil verkefni sem snerta anga daglegs lífs fólks á margan hátt og undir eru verðmæt störf hringinn í kringum landið. Sú sem hér stendur starfar sem fulltrúi sýslumannsins á Suðurlandi með fasta starfsstöð á Hvolsvelli og því hef ég mikla þekkingu og yfirsýn yfir verkefni sýslumanns. Fólk kemur í alls konar ástandi til okkar með alls konar flókin lögfræðileg úrlausnarefni.
Í frumvarpi ráðherra er sú breyting lögð til frá núverandi skipan að það sé ekki skilyrði að sýslumaður sé löglærður. Þetta tel ég ekki til bóta. Umsagnir sem sendar voru inn vegna þessa máls benda einnig á þetta. Félag löglærðra fulltrúa sýslumanna, laganefnd Lögmannafélags Íslands og Sýslumannafélag Íslands benda á að mikilvægt sé að sýslumaður sé löglærður vegna þeirra verkefna sem sýslumenn fara með. Með leyfi forseta vísa ég í umsögn Félags löglærðra fulltrúa sýslumanna:
„Telur félagið því brýnt að gerð verði breyting á frumvarpinu með þeim hætti að hæfiskrafa verði gerð til nýs sýslumanns um að sá sem sinni embættinu hafi lokið fullnaðarprófi í lögum eða eftir atvikum grunn- og meistaranámi í lögum. Verður að öðrum kosti að bregðast við með þeim hætti að taka það fram með afdráttarlausum hætti í frumvarpinu að ólöglærðum sýslumanni sé óheimilt að framkvæma […] kyrrsetningu, lögbann o.fl. Þykir það eðlileg krafa, með tilliti til réttaröryggis borgaranna, enda krefjast þau verkefni sem sýslumanni eru falin í þessum og fleiri lagabálkum djúpstæðrar faglegrar lögfræðiþekkingar.“
Í umsögn laganefndar Lögmannafélags Íslands er bent á að algengt sé að hæfisskilyrði feli í sér tengingu milli málefnasviðs embættis og hæfis forstöðumanns stofnunarinnar. Til að mynda skulu ríkislögreglustjóri, aðstoðarríkislögreglustjóri, lögreglustjórar og aðstoðarlögreglustjórar, auk almennra hæfisskilyrða, hafa lokið meistaraprófi í lögum.
Á að taka þessa stefnu nú og aftengja þekkingu á málaflokkum við skipun nýs sýslumanns? Það er ekki heillaskref, virðulegur forseti. Ef til þess kæmi að lögregluembættin yrðu sameinuð væri það sama uppi á teningnum þar. Ef frumvarp þetta verður samþykkt óbreytt verður ráðinn yfirlögfræðingur sem mun þurfa að svara fyrir öll þessi lögfræðilegu úrlausnarefni. Eðlileg krafa er að forstöðumaður stofnunarinnar geti svarað fyrir ákvarðanir starfsmanna sinna og hafi þekkingu á verkefnum sem hann fer með. Það þarf a.m.k. að gera ráð fyrir því ef það verður ráðinn ólöglærður sýslumaður hvert valdsvið hans verður. Mun hann geta þinglýst skjali eða gefið út lögskilnaðarleyfi? Löglærðir fulltrúar sýslumanna taka ákvarðanir daglega sem hafa áhrif á líf fólks, oft mjög lögfræðilega flóknar, eins og ég hef farið yfir, og skýtur það skökku við ef sýslumaður mun ekki hafa þekkingu á þeim úrlausnarefnum og ekki geta svarað fyrir þau. Ég beini því til hv. allsherjar- og menntamálanefndar að bæta úr þessu áður en greidd verða atkvæði um frumvarp þetta.
Ef markmið þessa frumvarps er sparnaður fæ ég ekki séð í hverju sparnaðurinn felst. Sparnaðurinn yrði helst í húsakosti eða þá fækkun starfsfólks en ljóst er að það á a.m.k. ekki að fækka starfsfólki. Ég bendi meiri hlutanum á að stilla væntingum sínum um sparnað í hóf. Stöðugildi sýslumanna verða lögð niður en sýslumenn hafa alls ekki verið verklausir og því þarf vinnandi hendur í þeirra stað. Eins og ég hef farið yfir fara sýslumenn með fjölbreytt verkefni og við sameiningu verður að passa að verðmæt verkefni fari ekki frá sýslumanni. Tekið er fram í nefndaráliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar með breytingartillögu að um 65% stöðugilda verði á landsbyggðinni, sem er gott og blessað. Það þarf að passa að staðbundin þekking hverfi ekki af því að hún er mikilvæg og verðmæt störf í heimabyggð, hringinn í kringum landið, skipta sköpum. Störfin mega ekki sogast milli Hvítánna.
Virðulegi forseti. Undir liðnum Tilefni og nauðsyn lagasetningar er tekið fram, með leyfi forseta:
„Tilefni frumvarpsins er að tryggja að löggjöfin sem varðar sýslumenn og verkefni stuðli að því að þjónusta hins opinbera gagnvart almenningi sé efld til muna í samræmi við væntingar til nútímaþjónustustofnana.“
Í dag er hægt að skipta dánarbúum frá upphafi til enda með rafrænum hætti. Erfingjar geta setið heima hjá sér og skilað inn erfðafjárskýrslu, leyfi til einkaskipta og tilkynnt andlát með stafrænum hætti. Sýslumenn hafa leitt stafræna þjónustu hjá hinu opinbera og hlotið verðlaun fyrir. Ég myndi telja að sýslumenn standist væntingar til þess sem flokkað er sem nútímaþjónustustofnun. Sýslumenn hafa m.a. hlotið Nýsköpunarverðlaun hins opinbera fyrir brautryðjendastarf við sjálfvirknivæðingu opinberrar þjónustu. Einnig má nefna að áætlaður þjóðhagslegur ávinningur af hverju rafrænt þinglýstu veðskuldabréfi er yfir 7.000 kr. og rúmar 3.000 kr. fyrir hverja afleysingu. Rafrænar þinglýsingar spara fólki sporin og spara ríkinu aura og vinnu, og ég bendi á mælaborð rafrænna þinglýsinga hvað þetta varðar. Stafræn vegferð sýslumanna er dæmi um sparnað í opinberum rekstri sem og að einfalda kerfið. Aðrar stofnanir eiga að taka sýslumann til fyrirmyndar hvað stafræna vegferð varðar. Þá myndu enn fleiri aurar sparast sem og handtök starfsmanna hjá hinu opinbera. Þetta er risastórt mál sem snertir þjónustu við mikinn meiri hluta landsmanna. Þessi sameining þarf að vera samhent átak skipaðs sýslumanns, ráðuneytis og Stjórnarráðsins. Verkefnin spanna yfir 100 lagabálka og 200 reglugerðir og því um stórt verkefni að ræða og margir starfsmenn undir.
Virðulegi forseti. Annars styð ég þetta mál, ef þetta verður rétt gert og tekið tillit til nefndarálits 2. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Virðulegur forseti. Ég hef lokið máli mínu.