157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

hækkun skatta og gjalda.

[15:10]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir spurninguna. Það er erfitt að eiga við þetta með að ég tali eins og prófessor af því að það er nú raunverulega það sem ég er og ég biðst afsökunar á því við þingheim, það er vani sem erfitt er að venja sig af. Varðandi fullyrðingar hv. þingmanns um hækkanir ríkisútgjalda milli ára þá hef ég áður í þessum ræðustól farið yfir að 143 milljarðar er nokkuð fjarri lagi eða alla vega ekki sanngjörn framsetning á þeim breytingum sem urðu milli ára. Í fyrsta lagi þýddi uppgjörið á ÍL-sjóði, sem var fullkomin samstaða um í þessum þingsal og hv. þingmenn tóku þátt í að samþykkja, að sá vaxtakostnaður sem fylgdi skuldbindingum ÍL-sjóðs færðist yfir í A1-hluta ríkissjóðs, um 28 milljarðar, og síðan voru einir 70 milljarðar þar að auki í breytingar vegna verðlags- og launabreytinga. Menn geta auðvitað leikið sér pólitískt að því að hækka tölur en það gerir þær ekkert sannari.

(Forseti (ÞSv): Forseti vekur athygli þingmanna á því að það er eitthvert ólag á klukkunni í púltinu.)