157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

áhrif kílómetragjalds.

[15:12]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Við horfum nú upp á meiri verðbólgu annan mánuðinn í röð. Það verður að segjast að það hefur verið kostulegt að fylgjast með hæstv. fjármálaráðherra, og nú forsætisráðherra, afsaka eigin gjörðir, bæði hér í þinginu og í fjölmiðlum síðustu daga. Vextir standa í stað, verðbólga eykst, atvinnuleysi eykst en þetta er allt öðrum að kenna. Hæstv. ríkisstjórn er svo augljóslega úr takti við venjulega fólkið sem hún ætlaði að standa vörð um og alls ekki að hækka skatta og álögur á. Þetta sama venjulega fólk hefur fengið rukkun fyrir einn mánuð af kílómetragjaldi ríkisstjórnarinnar og er vægast sagt ósátt. Allt það sem stjórnarandstaðan benti á fyrir áramót er nú að raungerast. Við stjórnmálamenn eigum að vera málsvarar fólksins í landinu, almennings sem kaus okkur og því ætla ég að standa hér fyrir hana Eygló hjá Landspósti sem hringdi inn á Bylgjuna í morgun. Eygló keyrir um 300 km á dag upp um fjöll og firnindi til að koma pósti í sveitir Suðurlands. Kostnaður hennar hefur hækkað um 45.000 kr. á mánuði eða ríflega hálfa milljón á ári. Ekki getur hún keypt sér rafmagnsbíl því þeir eru ekki hannaðir fyrir fjallvegi eða vetrarfærð og lækkun á dísilolíu nemur ekki skattahækkun ríkisstjórnarinnar. Eygló sagði að þetta yrði í fyrsta skipti í 26 ár sem hún verði í mínus á ársuppgjöri sínu við Skattinn. Eygló er bara ein þeirra Íslendinga sem hafa kvartað sáran undan þessari skattahækkun og það á sérstaklega við um fólk úti á landi. Er það fólk ekki venjulega fólkið eða hvað? Ég spyr hæstv. fjármálaráðherra: Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni? Hvert á Eygló og annað fólk að beina reiði sinni ef ekki að ríkisstjórninni? Ætlar ráðherra að halda áfram að kenna olíufélögunum um þetta eða taka einhverja ábyrgð sjálfur og ja, ég vil leyfa mér að segja, endurskoða þessa skattlagningu?